Alþýðublaðið - 23.08.1923, Page 2
AL*irS&'ÖJS£A*t*
Alftýðniiraaðflerðin
íramleiðir að allra dómi
foeztu braudln í bænam,
Notar að eins bezta mjöl og hveiti frá þektum erlendum
mylnuin og aðrar vörur frá helztu firmum í Ameríku,
Englandi, Danmörku og Hollandi. Alt efni til brauð- og köku-
gerðar, smátt og stórt, eru beztu vörutegundirnar, sem á
heimsmarkaðinum fást.
Fangelsi
eéa
betrnnarheiuilL
(Frh.)
IV.
Ég hefi hér að eins drepið á
merkilegt siðbótarmál. Finst mér
ekki vanþörf á því, þar sem
hegnlugarlöggjöf vor lætur ár
eftir ár setja glæpamannainnsigli1)
á óþioskað iólk, sem ónógt upp-
eldi og siæmur féiagsskapur hefir
leitt á glapstigu. Unglingar eru
að vísu að ötlum jafnaði látnir
sleppa með skilorðsbundoa dóma,
þá er það er leyfilegt að lögum.
Jafnvel stuudum menn, sem
komnir eru undir prítugt, ef
sökin er ekki talin stórvægileg,
eða ef talsverðar málsbætur eru
fyrir hendi að áliti réttárins.
Reísifrestur þe.tsi er að vísu
góðra gjalda verður, það sem
liann nœr. Þrátt fyrir íiann er
þð margt af því fólJci, sem varpað
er í fangelsin, að minsta kosti
þegar það kemur þangað í
fyrsta sinni, enn í raun réttri
óþroskuð börn, þó að eldri séu
að árum. Og þessi b'úrn hafa
meiri þörf á handleiðslu þeirra,
sem tastara standa á svellinu,
heldur en á óbótamannsmerki,
sem vatalaust gerir mörg þeirra
að hálfu verri mönnum heldur
en þau nokkru sinni hefðu þurít
að verðá.
Athuga vel!
Sálir og framtíð þessa fólks
eru meðal annars á þinni ábyrgð.
Þetta mál kemur þér því við.
E>á ert meira að segja skyidug-
ur til að hugsa um það og gera
þitt til að fá það Ieiðrétt.
Hegningakrafan á að þoka, en
umhyggjusöm handleiðsla og lækn-
ing afbrotamannanna að taka við
ríkjum í hennar stað.
Ouðm. 12. Ólafsson
úr Grindavík.
Fátækt er engiun glæpnr,
heldar þjáning.
1) Sbr. neðanmálsgieiniua (í I.
kafia greinar þessárar) um almenn-
ingsálitib samanborið við mark-
auimar foruu.
Einkennilegar
„umbætur:'
Mussolini, hinn ítalski hvítliða-
foringi, er fengið hefir alræðis-
vald í Ítalíuum sinn, þykist sjálf-
sagt ekki öruggur um að halda
því til lengdar. Því hefir hann
nú tekið sér fyrir hendur að
gera >uœbætur< á kosningalög-
unum, sem vísast eiga ekki sinn
líka í víðri veröld. Aðalatriðið
er það, að innleiddar eru hlut-
fallskosningar, er að vísu eru
ekki nema nafnið eitt. Alt ríkið
á að vera eitt kjördæmi, en þó
geta sérstakir listar orðið settir
upp í einstökum héruðum. Aftur
á móti er talið saman úr öllu
ríkinu í einu. Á þá sá flokkur,
sem fengið hefir helming at-
kvæða, að fá tvo þriðju hluta
fulltrúanna. Því, sem þá er eftir,
er skift hiutfallslega milli hinna
flokkanna. Áuk þess eru ýmis
brögð, er miða að því að tryggja
hvítliðaflokknum (faszistum) helm-
ing atkvæðanna.
Vitanlega hafa þessar »um-
bætur« mætt mikilli mótspyrnu,
Báðir jafnaðarmannaflokkarnir
hafa lagst á móti þeim og sömu-
leiðis katólski þjóðernisflokkurinn
undir forustu prestsins Sturza,
og meira að segja hefir einn af
þremur ráðherrunum úr þeim
flokki gengið til andstöðunnar.
Fyrir skömmu var þetta mál
til umræðu í neðri deild þings-
ins. Kom Mussolini á fundinn,
og er hann þó ekki vanur þvf.
Kann hánn betur við sig í öld-
ungádeildinni og ríkisráðinu.
Gerði hann þá ýmist að mælast
mjúklega til þess, að deildin
samþykti frumvarpið, eða hóta
Hjálparstðð hjúkrunarfélags-
Ins >Líknar« er opin:
Mánudaga . . . kl. n—12 f. h.
Þriðjudagá ... — 5—6 e. --
Miðvikudaga . . — 3—4 e. --
Föstudaga ... — 5—6 e. --
Laugardaga . . — 3—4 e. --
Verkamaðui’innj blað jafnaðar-
manna á Akuroyri, er bezta fréttablaðið
af norðlenzku biöðunum. Elytur góðar
ritgerðir um stjórnmál og atvinmumál.
Kemur út einu sinni í viku. Kostar
að eins kr. 5,00 um árið. Gerist áskrif-
endur á afgreiðslu Alþýðublaðsins.
Útbreiðið Aiþýðublaðið
hvar sem þið eruð og
hvert sem þið fariðl
því, að deildin yrði afnumin með
valdi að öðrum kosti. Fór svo,
að frumvarpið var samþykt, en
þjóðernisflokkurinn kíofnaði, þvi
að úr honum voru reknir 9
þingmenn, er þóttu of hliðhollir
stjórn Mussolinis.
Er nú byrjaður undirróður að
því að láta þessar nýju »um-
bætur« ná tiigangi sínum, að
tryggja Mussolini einræðið. Herja
nú hvítliðar ríkið og myrða
andstæðingána eða spilla lífsupp-
eldi þetrra. Þannig kveiktu þeir
nýlega í húsum samvinnufélaga
verkamanna í 5 héruðum og
brendu þau upp. Munu þeir
einskis ætla að láta ótreistað til
þess að koma sínu fram.