Alþýðublaðið - 23.08.1923, Síða 2

Alþýðublaðið - 23.08.1923, Síða 2
AL*irS&'ÖJS£A*t* Alftýðniiraaðflerðin íramleiðir að allra dómi foeztu braudln í bænam, Notar að eins bezta mjöl og hveiti frá þektum erlendum mylnuin og aðrar vörur frá helztu firmum í Ameríku, Englandi, Danmörku og Hollandi. Alt efni til brauð- og köku- gerðar, smátt og stórt, eru beztu vörutegundirnar, sem á heimsmarkaðinum fást. Fangelsi eéa betrnnarheiuilL (Frh.) IV. Ég hefi hér að eins drepið á merkilegt siðbótarmál. Finst mér ekki vanþörf á því, þar sem hegnlugarlöggjöf vor lætur ár eftir ár setja glæpamannainnsigli1) á óþioskað iólk, sem ónógt upp- eldi og siæmur féiagsskapur hefir leitt á glapstigu. Unglingar eru að vísu að ötlum jafnaði látnir sleppa með skilorðsbundoa dóma, þá er það er leyfilegt að lögum. Jafnvel stuudum menn, sem komnir eru undir prítugt, ef sökin er ekki talin stórvægileg, eða ef talsverðar málsbætur eru fyrir hendi að áliti réttárins. Reísifrestur þe.tsi er að vísu góðra gjalda verður, það sem liann nœr. Þrátt fyrir íiann er þð margt af því fólJci, sem varpað er í fangelsin, að minsta kosti þegar það kemur þangað í fyrsta sinni, enn í raun réttri óþroskuð börn, þó að eldri séu að árum. Og þessi b'úrn hafa meiri þörf á handleiðslu þeirra, sem tastara standa á svellinu, heldur en á óbótamannsmerki, sem vatalaust gerir mörg þeirra að hálfu verri mönnum heldur en þau nokkru sinni hefðu þurít að verðá. Athuga vel! Sálir og framtíð þessa fólks eru meðal annars á þinni ábyrgð. Þetta mál kemur þér því við. E>á ert meira að segja skyidug- ur til að hugsa um það og gera þitt til að fá það Ieiðrétt. Hegningakrafan á að þoka, en umhyggjusöm handleiðsla og lækn- ing afbrotamannanna að taka við ríkjum í hennar stað. Ouðm. 12. Ólafsson úr Grindavík. Fátækt er engiun glæpnr, heldar þjáning. 1) Sbr. neðanmálsgieiniua (í I. kafia greinar þessárar) um almenn- ingsálitib samanborið við mark- auimar foruu. Einkennilegar „umbætur:' Mussolini, hinn ítalski hvítliða- foringi, er fengið hefir alræðis- vald í Ítalíuum sinn, þykist sjálf- sagt ekki öruggur um að halda því til lengdar. Því hefir hann nú tekið sér fyrir hendur að gera >uœbætur< á kosningalög- unum, sem vísast eiga ekki sinn líka í víðri veröld. Aðalatriðið er það, að innleiddar eru hlut- fallskosningar, er að vísu eru ekki nema nafnið eitt. Alt ríkið á að vera eitt kjördæmi, en þó geta sérstakir listar orðið settir upp í einstökum héruðum. Aftur á móti er talið saman úr öllu ríkinu í einu. Á þá sá flokkur, sem fengið hefir helming at- kvæða, að fá tvo þriðju hluta fulltrúanna. Því, sem þá er eftir, er skift hiutfallslega milli hinna flokkanna. Áuk þess eru ýmis brögð, er miða að því að tryggja hvítliðaflokknum (faszistum) helm- ing atkvæðanna. Vitanlega hafa þessar »um- bætur« mætt mikilli mótspyrnu, Báðir jafnaðarmannaflokkarnir hafa lagst á móti þeim og sömu- leiðis katólski þjóðernisflokkurinn undir forustu prestsins Sturza, og meira að segja hefir einn af þremur ráðherrunum úr þeim flokki gengið til andstöðunnar. Fyrir skömmu var þetta mál til umræðu í neðri deild þings- ins. Kom Mussolini á fundinn, og er hann þó ekki vanur þvf. Kann hánn betur við sig í öld- ungádeildinni og ríkisráðinu. Gerði hann þá ýmist að mælast mjúklega til þess, að deildin samþykti frumvarpið, eða hóta Hjálparstðð hjúkrunarfélags- Ins >Líknar« er opin: Mánudaga . . . kl. n—12 f. h. Þriðjudagá ... — 5—6 e. -- Miðvikudaga . . — 3—4 e. -- Föstudaga ... — 5—6 e. -- Laugardaga . . — 3—4 e. -- Verkamaðui’innj blað jafnaðar- manna á Akuroyri, er bezta fréttablaðið af norðlenzku biöðunum. Elytur góðar ritgerðir um stjórnmál og atvinmumál. Kemur út einu sinni í viku. Kostar að eins kr. 5,00 um árið. Gerist áskrif- endur á afgreiðslu Alþýðublaðsins. Útbreiðið Aiþýðublaðið hvar sem þið eruð og hvert sem þið fariðl því, að deildin yrði afnumin með valdi að öðrum kosti. Fór svo, að frumvarpið var samþykt, en þjóðernisflokkurinn kíofnaði, þvi að úr honum voru reknir 9 þingmenn, er þóttu of hliðhollir stjórn Mussolinis. Er nú byrjaður undirróður að því að láta þessar nýju »um- bætur« ná tiigangi sínum, að tryggja Mussolini einræðið. Herja nú hvítliðar ríkið og myrða andstæðingána eða spilla lífsupp- eldi þetrra. Þannig kveiktu þeir nýlega í húsum samvinnufélaga verkamanna í 5 héruðum og brendu þau upp. Munu þeir einskis ætla að láta ótreistað til þess að koma sínu fram.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.