Póst- og símatíðindi - 01.06.1959, Blaðsíða 1
Póst
G e f i n
ú t
og símatíðindi
af P ó s t - og símamálastjórninni
Nr. 5—7. Maí—júní 1959.
Lesist þegar viB móttökul Efni: I.esist þegnr viB móttöku'
A. I. Samningur um samtök póst- og símamálastjórna Evrópu. II. Norræn póstmálaráðstefna. III. Póstbögglaviðskipti við Stóra-Bretland. IV. Brezkir póstpokar. V. Starfskjör starfsfólks á 1. fl. B.-stöðvum. VI. Nýtt signet. VII. Blöð og timarit. VIII. Bréfhirðingar lagðar niður. IX. Um- burðarbréf.
I.
Samningur um samtök póst- og símamálastjórna Evrópu.
Hinn 27. júní 1959 var undirritaður samningur um samtök póst- og símamála-
stjórna Evrópu, sem gengur í gildi þegar helmingur undirskrifta hefur verið stað-
festur. Samtökin heita Conférence européenne des postes et des télécommunications,
skammstafað CEPT.
Samninginn undirrituðu póst- og sfmamálastjórnir 19 landa, Austurríkis, Belgíu,
Bretlands, Danmerkur, Finnlands, Frakklands, Grikklands, Hollands, írlands, ís-
lands, Ítalíu, Luxemburgar, Noregs, Portúgals, Spánar, Sviss, Svíþjóðar, Tyrldands
og Þýzkalands.
Samtökin eiga að vera óháð öllum stjórnmálalegum og fjármálalegum samtök-
nm og hafa þann tilgang að vinna að nánu samstarfi Evrópulandanna á sviði pósts
og síma, bæði í skipulagi, rekstri og tækni. Heildarfundir eru árlega og verður sá
næsti í Fralcklandi, en þess á milli starfa nefndir sérfræðinga. Aðalnefndir eru
tvær, önnur fyrir póst, hin fyrir síma.
Allar ákvarðanir eru í meðmælaformi, sem hver póst- og símamálastjórn ræður
hvort hún framkvæmir.
Fulltrúar íslands voru Gunnlaugur Briem, póst- og símamálastjóri, og Magnús
•lochumsson, póstmeistari.
II.
Norræn póstmálaráðstefna.
Norræn póstmálaráðstefna var haldin í Kaupmannahöfn dagana 16.—18. júní
1959. Fulltrúar íslands voru þeir Gunnlaugur Briem, póst- og símamálastjóri, og
Magnús Jochumsson, póstmeistari.
III.
Póstbögglaviðskipti við Stóra-Bretland.
Hinn 1. apríl s. 1. féll úr gildi samningur milli íslands og Stóra-Bretlands um
skipti á póstbögglum. Á póstþinginu í Ottaxva gekk Stóra-Bretland að alþjóða-
póstbögglasanmingnum, og fara bögglapóstviðskipti milli þess og íslands hér eftir
samkvæmt þeim sanmingi.