Póst- og símatíðindi - 01.09.1963, Blaðsíða 1

Póst- og símatíðindi - 01.09.1963, Blaðsíða 1
Póst- og símatíðindi — Gefin út af Póst- og símamálastjórninni Nr. 1.—9. Janúar—september 1963. Efni: A. I. Norræn póstmálaráðstefna. II. Ráðstefna Evrópusamráðs pósts og síma. III. Frimerki. IV. Pósthús í Skálholti. V. Dagur frímerkisins. VI. Nýjar gjaldskrár. VII. Ný reglugerð og nýj- ar reglur. VIII. Póstur og sími á Patreksfirði. IX. Bréfhirðingar. X. Talning póstsendinga. XI. Lausar stöður og veittar. XII. Umhurðarbréf. B. Ileglur um afslátt af burðargjaldi blaða. Lesist þegar við móttöku! Lesist þegar við móttöku! A. I. Norræn póstmálaráðstefna, Norræn póstmálaráðstefna var haldin í Reykjavík dagana 4.—6. júlí 1963. Fyrir íslands hönd sátu ráðstefnuna eftirtaldir fulltrúar: Gunnlaugur Briem, póst- og simamálastjóri. Bragi Kristjánsson, forstjóri rekstursdeildar. Páll V. Daníelsson, forstjóri hagdeildar. Matthías Guðmundsson, póstmeistari. Rafn Júlíusson, póstmálafulltrúi. Auk þess sátu ráðstefnuna sem ritarar þau Sveinn G. Björnsson, deildarstjóri og Friðný Sigfúsdóttir, fulltrúi. Að ráðstefnunni lokinni komu ritstjórar Nordislc Posttidslcrift saman til fund- ar í Reykjavík. II. Ráðstefna Evrópusamráðs pósts og síma. Ráðstefna Evrópusamráðs pósts og síma (CEPT) var haldin i Miinchen í Þýzkalandi dagana 2.—14. september 1963. Fulltrúar íslands á ráðstefnunni voru þeir Bragi Kristjánsson, forstjóri rekstursdeildar og Jón Skúlason, forstjóri síma- tæknideildar. Á x-áðstefnunni voru þrjú ný Iönd tekin inn í samráðið, Kýpur, Liechtenstein og Monaco. III. Frímerki. Eftirtalin frimerki hafa verið gefin út: a) 20. febrúar 1963 i tilefni af aldarafmæli Þjóðminjasafnsins: kr. 4.00, með mynd af Sigurði Guðmundssyni rnálara og kr. 5.50 með rnynd af hluta úr Valþjófs- staðahurðinni. LáWDoiJúk A jAt ,v 249209 ÍSLANDS

x

Póst- og símatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Póst- og símatíðindi
https://timarit.is/publication/667

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.