Alþýðublaðið - 23.08.1923, Qupperneq 3
3
DagsYerkag jafirnar
til Álþýðahúesins.
Þessir mean hafa lagt fram
dagsverk til Alþýðuhússins, síðan
síðast var skýrt frá þeim: Jón
Benediktsson Skólavörðustíg 30,
Felix Guðmundsson, Ögmundur
Friðfinnsson Suðurpóli, Sigurður
Sæmundsson, Hverfisgötu 47,
Grfmur Jónsson Laugavegi 66,
Sigurður Ólafsson Hverfisg. 71,
Guðmundur Helgason Njálsg. 13,
Haraldur Pálsson PálshúsiKlapp-
arstíg, Kristinn Á. Kristjánsson
Bergstaðastr. 34 B, Guðmundur
Gnðjónsson Grettisgötu 43.
Skrítla.
Stúlka var á gángi á götum
Kaupmannahafnar. Úti var sólskin
og sunnangola. fá andvarpaði hún:
»Þetta er meiri hitinn! Ef ekki
væii andvarinn, þá held ég, að ég
stiknaði.« Rétt í því sagbi önnur
stúlka skamt frá: »]?etta er ljóti
gusturinn! Ef ekki nyti sóiar, þá
skylfi ég eins og hundur«.
Ouðm. B. Olafsson
úr Grindavík þýddi lausl.
Frá ýmsnrn hliðum.
Nýjft spokl þykist »Yísir« sjálf-
sagt hafa fundið upp, er hann
heldur því fram, að atvinna manna
skifti engu fyrir iífsskoðanir þeirra
Hitt er annað, hversu honum tekst
að vinna speki þessari fylgi. Hing-
að til hefir mönnum þótt skoð-
anir þær, er ritstjórinn fiytur í
blaðinu, í góðu samræmí við það,
að hann stýrir auglýsingablaðl
„MorgnuhlaðS ð‘c birtir nú hver ja
greinina eftir aðra um ýms orð,
er notuð eru í umræðum um
stjórnmál nútímans, en hugmynd-
irnar hafa einhvern veginn orðið
utan veltu við orðin; vera má,
að það stafl af því, að þær eru
ritaðar í svo íerhyrndum stíl, að
fullkomin hætta er á því, að þær
grýti frá blaðtetrinu þessa fáu
lesendur, sem enn halda tryggð við
það vegna ritstjórans, svo að eins
tómlegt verði innan skamms kring
um blaðið og 1 því. Allar eru
þessar grýtingargreinar sjáanlega
eftir sama manninn, þótt ýmis
nöfn standi undir þeim.
Nýtt met í íslenzkumníðingsskap
var sett í Hafnarfirði við ráðningu
háseta á togarann »Ými«. Eða hvað
verður það annað kallað að ráða
ötula og hrausta sjómenn fyrir
suitarlaun, þótt 5 aura aukaþókn-
un fylgi, meðan skipstjóri og út-
gerðarstjóri hafa hærri iaun en
aliir hásetarnir? Auðvitað varð
framkvæmdarstjóri einhvers staðar
að ná í tekjuauka handa hluthöf-
um, ef það er satt, að laun hans
hafi verið hækkuð alt að helmingi,
auk hækkaðra launa endurskoð-
enda, sem var mjög hyggilegt, ef
verða kynni, að þeir sæju þá bet-
ur, af hverju útgerðarkostnaðurinn
er svo gífurlega hár.
Einn af hluthöfunum.
Sdgar Rieo Burroughi: Býr Tar-zana.
hann heyrði getið um svertingjakonuna, að hún
yrði líka tekin.
Þegar Kai Shang og Momulla komu aftur, þótt-
ust þeir ekki þurfa Gústavs lengur! við. Peir gengu
beina leið að tjaldi því, sem þeir töldu víst að
hann dveldi í.
Er þeir geDgu til tjaldsins, þuklaði Momulla um
skaftið á löngum skeiðarhníf sínum. Farið hefði
um Svíann, hefði hann séð þetta, eða befði hann
getað lesið í huga svertingjans.
Svo vildi til, að Gústav var staddur í tjaldi
matsveinsins, sem var rétt hjá hans eigin tjaldi.
Hann heyrði því þá félaga koma, þótt hann dreymdi
ekki um, að erindi þeirra snerti hann sérstak-
lega.
Af tilviljun leit hann þó út úr tjalddyrunum,
um leið og Kai Shang og Momulla nálguðust tjald-
dyr hans, og honum sýndist þeir fara laumulega,
eins og ekki væri friðar að vænta, og rétt í því
þeir fóru inn úr dyrunum, sá hann bregða fyrir
hníf, sem Momulla hélt fyrir aftan bakið.
Svíinn glenti upp augun, og hárin risu á höfði
hans. Hann fölnaði upp, Samstundis fór hann úr
tjaldinu. Hann fýsti sízt að grandskoða það, sem
hann þóttlBt gerla vita.
Hann ver vís um, að Kai Shang og Momulla
sóttust eftir lífi hans, Hingað til hafði hann verið
öruggur vegna þess, að enginn gat stjórnað skip-
inu nema hann. En nú hafði eitthvað skeð, sem
hann ekki vissi, er gerði nærveru hans óþarfa.
Viðstöðulaust skundaði Gústav yfir ströndina og
inn í skóglnn. Hann óttaðpt myrkviðinn; undarleg
hljóð bárust um hann; — blærinn hvein ömurlega
í trjánum.
En þótt Gdstav hræddist myrkviðinn, hræddist
hann ' þó þá Kai Shang enn þá meira. Hættur
myrkviðarins voru meira og minna ímyndaðar, en
hættan, sem honum stafaði af félögum sínum, var
augljós. Hann kaus því skóginn.
ÞelPy sem vilja eignast verulega góða og
skemtilega sögubók, ættu ekki að láta það
dragast lengur að ná í Tarzan-sögurnar.
Tvö heftin, sem út eru komin, fást enn á
afgreiðslunni. — Kaupið heftin, jafnóðum og
þau koma út, til þess að missa ekki af þeim.