Morgunn - 01.12.1920, Blaðsíða 5
MOR(iUNN
8 3
irnir stigu upp úr djúpi dýranna, að minsta kosti síðan
nokkurar sögur fóru af mönnum. Stundum hafa þau náð
furðulegri fullkomnun en aðra stundina yfir þeim dofnað
— athygli mannanna þá beinst að öðrum efnum eða ein-
liver svefndrungi og værð fallið yfir hana. En það, sem
öllu öðru fremur virðist einkenna þau nú og hefir gert
nú um langt skeið, er virðingin fyrir staðreyndum lifsins.
Þvi að þó að undarlegt megi virðast, þá er þetta tiltölu-
lega ungt einkenni á liugsandi mönnum. En það er í
þessu efni eins og svo oft endranær, að mönnum sést yfir
það, sem virðist liggja fyrir fótum þeirra Það er ekki
ýkjalangt síðan mönnum skildist, að beinasti vegurinn til
þess að kynnast iífinu og skilja það er að athuga lííið Lengst
af hafa spekingarnir horft út yfir lífið, hver frá sinni sér-
stöku sjónarhæð, og ályktað sér til. hvermg það hlyti að
vera. Þess vegna gat fráleitt nokkur af samtíðarmönnum
enska vitringsins Bacon áttað sig á því. er hann benti
þeim á, að þeir tímar hlytu að koma, er atliugun og til-
raunum yrði beitt á öllum sviðum þekkingarleitar mann-
anna. En í þessu eru fólgin aðalkostur og aíi nútíðarvis-
indanna. Með óþrotlegri elju hafa þau sökt sér niður í
að athuga, flokka og gera tili aunir með fyrirbrigði lifsins.
Og árangurinn er glæsilegur. Nú fyrst sýnist mönnum
ætla að takast að ná því marki, sem Gfyðingar töldu guð
hafa boðið þeim í upphafi: að gera sér jörðina undirgefna.
Hvert náttúrulögmálið hefir uppgötvast öðru mikilfeng-
legra, og valdið yfir þeim eykst með hverjum degi.
En áhrifameiri en allir sigurvinningar visindanna yfir
náttúruöflunum eru þó ályktanir þeirra um þau efni, er
snerta mannlíflð sjálft og yfirleitt lífið á jörðinni. í þeim
efnum hefir kollvörpunin verið svo gagngerð frá þeim
hugmyndum, sem menn höfðu áður gert sér. Aðferðirnar
við rannsóknirnar hafa verið þær sömu á þessum sviðum
eins og öðruin, nákvæm athugun, tilraunir, fiokkun. Og
meginreglan, sem fylgt hefir verið, er su að skýra ekkert
með öðru'en því, sem áður var talið sannað. Aðaltrúar-
6*