Morgunn - 01.12.1920, Blaðsíða 87
MOfiGrUNN
16t>
ein8 og þeir gerast alment, en þegar hann sagði, að hann
langaði til að í'á meiri sannanir fyrir andlegum heimi.
Það er einraitt þessar sannanir, sera hugsanlegt er að
spíritisminn færi mönnunum.
»En auk framhaldslífs andans eftir dauðann getur
verið að spíritisminn fræði okkur eitthvað meira en trúar-
brögðin hafa nokkuru sinni frætt um samband lifandi
manna og framliðinna.
»Margar syrgjandi sálir hafa. orðið sér þess rneðvit-
andi, meðan á ófriðinum mikla stóð, að framliðnir menn,
sem þær höfðu unnað, stóðu nær þeim en þeir höfðu áð-
ur gert.
>Feður, mæður og ekkjur, sumar þeirra ungar brúðir,
hafa þráð, í sínum lira>ðilega einstæðingsekap, að fá að
vita, hvort ekkert væri, sem þau gætu gert fyrir þá, sem
þau liafa unnað og mist. Sú eðlishvöt að biðja fyrir hin-
um látnu hefir orðið óviðráðanleg. öll trúarbrögð eru háð
mannlegu eðli; og ef þau misbjóða svo mjög mannlegu
eðii, að þau banni fyrirbænir fyrir framliðnum mönnum,
þá er eg hræddur um, að karlar og konur muni hverfa
frá þeim, eða að minsta kosti snúi bakinu við hverri
þeirri kirkju, er bannar jafn-eðlilegan sið, eins og fyrir-
ba nir fyrir framliðnum mönnum, og leiti til þeirra kirkna,
sem hvetja menn til slíks.
»Sannlega má lfta svo á, sem slíkar bænir séu ein-
mitt fólgnar í eðli þess, sem nefnt er samfélag heilagra.
En opinberarir frá ósýnilegum heirai, eins og þær, sem
mér hefir ósjaldan verið skýrt frá, stefna að því að
sýna, að framliðnir raenn þrái ákal’t fyrirbænir jarðncskra
manna ; og þær opinberanir veita ósegjanlega huggun við-
kvæmum sálum, sem skyndilega hafa mist ljós vona sinna
eða fagnaðar.
»Hugsanlegt er, að spíritisminn leiði ekki cingöngu í
1 jós gildi fyrirbænanna fyrir framliðnum mönnum, heldur
og að einhverju leyti, hvers eðlis það líf er, sem fiamliðnir
menn lifa, i ósýnilegum eilifðarheimi. Ef unt er að fá
L.