Morgunn - 01.12.1920, Blaðsíða 110
188
MORGUNN
MIK. Rún uar acl sækja blóm.
Nóttina fyrir 8. júni 191 7 dreymir mig, að einhver ber
hér á dyr; eg opna hurðina og sé að kotninn ersíraArn-
ljótur, sem var á Sauðanesi. Hann heilsar mér glaðlega.
Eg spyr liatm, hvort hann sé einn á ferð, hvort konan
hans sé ekki með honum. >Onei«, segir hann, »hún skrapp
til Þórshafnar að sœkja þangað blóm«. Litið eða ekkert
meira dreymdi mig þá.
Þann 8. júní 1917 dó í Þórshöfn Sigríður Valgerður,
barn að aldri, dótturdóttir þeirra síra Arnljóts og Ilólm-
fríðar konu hans.
tttt. I loftfari.
Stephan umboðsmaður Stephensen á Akureyri dó 3.
okt. síðastl. Nóttina eftir, áður en lát hans fréttist hing-
að að Möðruvöllum, dreymdi mig þennan draum:
Eg þóttist koma út, og kom þá strax auga á loftfar,
sem svífur yfir kirkjunni. Það sígur svo niður í kirkju-
garðinn fast hjá leiði Ola sáluga bróður míns; eg sé tvo
menn stíga út úr loftfarinu og ganga báðir kringum stak-
kítið. Eg þekki fljótt, að annar þessara manna er Oli
bróðir minn (sem dó fyrir 2 árum); undrast eg það, en
þykist þó sansa mig á því, að hann hafi alls ekki dáið.
Eg geng svo lit i kirkjugarðinn; þar koma þcir á mótí
mér, og þekki eg þá. að hinn maðurinn er St. Stephensen
umboðsmaður, gamall og góður og tryggur vinur 0. bróð-
ur míns. Við heiisumst og eg bið þá að koma inn. Nei,
ekki núna, segir Ó , en kannake þú VÍljír lCOllia lheð okk-
ur í loftl'arinu? Nei, i lol’tfari fer eg ekki neitt, segi eg.
Já, eg man það nú annars, segir hanil, að þú ert loft-
hrædd; en eg er nú að sækja minn gamla góða vin. Síð-
an kveðja þeir mig, en eg spyr þá, hvort þeir ætli héðan
út á Hjalteyri. Nei, segir Ó., en heilsaðu öllum mínum
kæru frá mér, og sömu kveðju biður Stephensen mig að
flytja. Siðan stiga þeir upp í loftfarið, og svífur það þá