Morgunn - 01.12.1920, Blaðsíða 133
MORGUNN
211
rnál, þá munu þeir nú enn vera nokkuð rnargir, sem telja
það dálítið ísjárvert að hæðast mjög napurt að mönnum
fyrir það að þeir trúa því, sem Jesús frá Nazaret taldi
óyggjandi. Svo að dr. Á. H. B. verður þá sennilega að
vísa nokkuð mörgum úr nútímanum og aftur í miðaldir
eða fornöld.
Og ef vér skiljum við »djöfulæði« áhrif frá lítt þiosk-
uðum verum í öðrum heimi, sem valda einhverskonar
geðveiki — annað heflr þetta víst aldrei merkt — þá
hefir þessi sannfæiing Jesú fengið merkilegan stuðning á
síðustu tímum. Mér er næst að halda að enginn þeirra
manna, sem telja vitundarsamband við fiamliðna menn
fengið, eflst um, að slík áhrif komi stundum fyrir. En
mest er um það vert, að einn af allra-vai fan-nustu sálar-
rannsóknamönnunum, prófessor Flyslop, telur sig hafa.
sannað þetta. Mér vitanlega hefir enginn lagt út i það
enn að hnekkja ásta^ðum hans. Dr. Á. H. B. ætti að gera
það, áður en hann rekur menn mjög langt út úr mann-
félagi nútímans fyrir það að vera prófessor Hyslop sam-
mála um þetta.
Þá er trúin á ferðirnar úr likamanum. Ætli Þórður
Sveinsson lendi ekki í nokkuð fjölmennum og sæmilega
góðum félagsskap, ef þeir verða allir taldir »viðundur«
og sjálfsagðir til þess að vera hafðir »að háði og spotti«,
sem eru geðveikralækninum okkar sammála um það atriði?
Nefna mætti til dæmis guðspekinga. Ekki eru þeir fáir
nú í heiminum; ekki eru þeir heldur fáfræðingar allir,
heldur hárnentaðir menn, margir þeirra. Allir eru þeir
sannfærðir um þessar útrásir sálarinnar úr likamanum, og
telja sig reisa þá sannfæring á óyggjandi reynslu. En um
þetta efni virðist ekki ástæða til að vitna til neins sér-
staks flokks manna. Ohætt mun að fullyrða, að í öllum
hinum miklu flokkum manna, sem eru sannfærðir um að
sálin sé sjálfstæð vera, kenni að miklum mun þessarar
trúar um að það komi fyrir, að sálir manna yfirgefi lík-
amann í bili.
14*