Morgunn - 01.12.1920, Blaðsíða 156
234
MORGUNN
Næst 8krifaði hún mér, að hún hefði leitað fyrir sér ura
þetta, en að hún væri enn engu nær. Síðar, fyrir rajög
skömmu, gerði frú Cowland (dóttir Sir Williams Crookes)
merkilega uppgötvun. Hún var að handleika nokkurar
ljósmyndir, sem faðir hennar liafði látið eftir sig í skrif-
borðinu sínu, og fann þá tvær ljósmyndaplötur, og mynd-
irnar á þeirn hafði Sir Wiliiam Crookes sjálfur tekið í
Suður-Afríku. Þær voru merktar: Klipdam nr. 1 og
Klipdam nr. 2. Eg lít svo á, sem þetta sé merkilegt, og
að ókleift sé að skýra það með nokkurum fjarhrifum
milli jarðneskra manna eða nokkurri tegund af tilviljun.«
Spíriti8minn berst nú svo ört út ura England, að undr-
um sætir, eftir því sem öllum virðist koma saman um,
jafnt fylgismönnum hans og andstæðingum. Bersýnilegt
er það, að sumir spiritistar eru ekki lausir við skelk út
af því, hvað hreyfingin er nú oröin hraðfara. Þeir hafa,
það fast í huga, að þó að vitanlega sé fengið samband
við annan heim, þá sé það samband ófullkomið, og menn
verði að nota það og treysta á það með hinni mestu
varhygð. Nú sé hætta á því, að hreyfingin komi yfir al-
menning eins og steypiíióð,s og allan þoirann muni
vanta þá þekking, sern nauðsynleg sé til þess að hún
verði þeim að góðu. í stað þess sera kirkjan með sínum
mentamönnum hefði átt að vera vingjarnleg og leiðbein-
andi frá upphafi — segja þeir — hafi hún streizt á móti
svo lengi, að nú séu helzt horfur á, að hún fengi við
ekkert ráðið, þó að hún vildi fara að bæta fyrir gamlar
t
yfirsjónir. Astandinu svipi yfirleitt mjög til siðbótartírn-
anna. Erasmus og Colet haldi ekki lengur hreyfiugunni
í 8kefjum. Lúter sé kominn til sögunnar.
Eitt af því, sem hefir hrundið spíritismanura hraðast
áfram í Englandi, er vafalaust fyrirlestraferðir Sir Arthurs
Conan Doyle. Það er alveg óhemjulegt verk, sem raaður-
inn hefir unnið nokkura síðustu mánuðina — altaf verið