Morgunn - 01.12.1920, Blaðsíða 166
IV
MORGUNN
innlendra miðla, og þar af leiðandi leggja stund á það að
eignast þá.
Eg er þá kominn að framtiðinni.
Ef við værum nógu auðugir og öflugir, mundum við
mikið hafast að. Eg ætla að minnast á hið helzta, sem
mér kemur tii hugar. Við mundura
1. Koma okkur upp húsnæði, þar sem við gætum
haldið fundi félagsins, þar sem unt væri að halda sara-
bandsfundi, og þar sem við gætum komið saman okkur
til gamans og gleði.
2. Efla það bókasafn, sera visirinn heflr fengist að
með bókagjöflnni, sera félaginu áskotnaðist í liaust —
auka það svo rayndarlega, að þsir sera vildu nota það,
gætu fengið þar verulega víðtæka og djúpsetta þekking
á því máli, sem félagið heíir aðallega tekið á stefnuskrá
sína.
3. Styðja miðilsefni fjárhagslega, til þess að þeir
geti náð þeim þroska, sem nauðsynlegur er, ef þeir eiga
að geta komið almenningi að haldi. Eins og til hagar
hjá oss, er nokkurn veginn óhugsandi, að vér geturn
eignast vel þroskaða miðla, án þess að sá stuðniugur
komi einhverstaðar frá. Og í raun og veru stendur það
engum nær að inna hann af hendi en þeira félagsskap,
sera vér höfum stofnað.
4. Ráða í þjónustu félagsins, um langan eða skamm-
an tíma, þroskaða miðla, þegar þeir eru fengnir, til þess
að geta gert félagsmönnum kost á að kynnast af eiginni
reynslu sambandinu við annan heim.
5. Stofna til verulega vísindalegra tilrauna raeð lík-
um hætti og þeir hafa haft með höndum dr, Hodgson Og
prófessor Hyslop. Þar liafa einstakir, frábærir sannana-
miðlar verið algerlega undir stjórn sérfræðinga, að svo
miklu leyti sem um stjórn á þeim er að tefla frá þessum
heimi. Sú vísindalega nákvæmni, sem þar er viðhöfð,
getur með engu móti samrýmst starfi þeirra miðla, sem