Morgunn - 01.12.1920, Blaðsíða 181
MORGUNlí
JTlorgunn
Timarit um andleg mál.
Ætlast er til, a-ð ritið komi út i þrem 5-arka
heftum á ári, 1. janúar, 1. maí og 1. september.
Vegna ástæðna ritstjórans er 2. og 3. hefti nú látið
koma út í einu, og er vonast eftir, að áskrifendur
misvirði það ekki. Argangurinu kostar 10 kr. Ein-
stök hefti (5 arkir) 4 kr. Þetta hefti (10 arkir) 8 kr.
Þórarinn B Þorldksson,
Bankastræti 11, Reykjavík,
er afgreiðslumaður. ritsins. Áskrifendur sendi honum
pantanir sínar og áskriftargjöld.
Alt efni, sem ætlað er til birtingar í ritinu, aend-
ist ritstjóra Morguns
Einari H. Kvaran,
Aðalstræti 16, Reykjavik.
Menn geri svo vel að afskrifa þau handrit, seni
honum kunna að verða send, svo að ekki þuríi að
endursenda þau, ef þau verða ekki notuð.
Sérstaklega er ritstjóra Morguns mikil þökk á
áreiðanlegum frásögnum um dulræn fyrirbrigði, SVO
sem merkilega drauma, flrðsýnir og firðheyrnir,
skygni, svipi, óskiljanlegan ókyrleika í húsum, fyrir-
boða, andlegar lækningar, sannanir frá tilrauna-
fundum o s. frv. Ekki er unt að lofa því að
prenta alt þess konar, sem ritstjóranum kynni að
berast. En það verður geymt í skjalasafni S. R. F. í.
Og það af þvi, sem hentugt virðist til birtingar,
verður prentað i Morgni, eftir því sem rúm leyfir.
B— ' ....... ........ ' ■