Morgunn - 01.12.1923, Qupperneq 27
MORGUNN
153
þrunginn að liugsa um sína framliðnu vinkonu, sá hann hana
alt í einu sitja á rúmstokknum hjá sér, brosandi eins og í
iifanda lífi. Hún kysti hann á ennið og varirnar, talaði
lengi við hann og las upp kvæði, eins og meðan hún var lif-
andi. Franek skrifaði upp það, sem hún sagði við hann
Frá tuttugasta aldursári til fjörutíu og sex ára ald-
urs var Kluski störfum lilaðinn, giftist og varð fjölskyldu-
faðir, en lítt hirti hann þá um sýnirnar.
í vetx-arlok 1917—1918 var hann kvöld eitt ásamt
nokkrum vinum sínum staddur á fundi með miðlinum Guzik.
Þegar miðillinn var farinn, datt vinum Franeks í'hugað halda
fundinum áfram til þess að vita, hvort ekki væri unt að fá
fyrirhrigði án miðils. Þeim til mikillar furðu sáust ljós-
fyrirbrigði umhverfis Franek. Hjá honum sat ung stúlka,
og héldu allir, að hún væri miðillinn. Var hún síðan beðin
að halda tilraununum áfram, en hún neitaði. Á öðrum fundi
tmeð Guzik fór alt á sömu leið, og eftir burtför hans sáust
aftur ljós : kringum Franek. Nú slcildist mönnum, að hann
væri miðillinn. Franek vildi ekki fallast á það og varð gram-
ur við vini sína. En eftir nokkrar vikur gaf hann samþykki
sitt til frekari funda, og tókust þeir jafnan vel.
Sálarrannsóknafélagið í Varsjá rannsakaði miðilsgáfu
Franeks um tíma og skýrði .sáiarrannsóknastofnuninni í
París frá reynslu sinni.
Sumarið og haustið 1920 var Franek sjálfboðaliði í her
Pólverja í stríðinu gegn Rússum og iðkaði þá e'kki mið-
ilsstörf. —
Eins og frú d’Espérance, miðillinn frægi, sem Franek
líkist að mörgu leyti, hefir hann sjáilfur mesta áhuga á
fyrirbrigðnnnm, og eins og hún getur hann athugað þau,
þar eð hann heldur oft og einatt. fullri meðvitund og athug-
unargáfu, á meðau á fyrirbrigðunum stendur. —
Skal ég nú skýra stuttlega frá fyrirbrigðum þeim, sem
gerast á miðilsfundum hjá Klusski.
Þar kemur fram grænhvít gufa eða þokuhnoðrar, sem
hera birtu; einkum sést þetta nálægt miðlinum. í ljósþoku