Morgunn - 01.12.1923, Blaðsíða 44
170
MORÖUNN
ljósið eins og vant var um kl. 11, fanst mér eg sofna von bráð-
ar. en hrökkva upp við það, að komið er inn í herbergið. Eg sé
dökkklæddan mann ganga beint aö rúmi Jóns. Hann lýtur
yfir brjóst Jóns, eins og að hann væri að aðgæta, hvort hann
væri sofnaður. Eg reis upp í rúminu til að sjá, hver þetta
væri, — því að eg taldi víst, aö það væri einhver af skóla-
piltum. En þegar eg teygi mig fram af rúmstokknum, rétt-
ir maðurinn sig upp, og líður fremur en gengur aftur fyrir
fótagafl rúmsins og hverfur þar smátt og smátt. Þá sá eg,
að þetta hafði ekki verið jarðneskur maður.
Á öðrum degi eftir þetta erum við Jón að lesa saman
úti í skóla. Hann fer þá að kvarta um, að hann eigi bágt
rueö aö lesa, það fari um sig ónot, og hann sé máttlítill. Eg
spyr hann, hvort hann hafi lengi fundið til þess. Hann seg-
ist hafa fundið til þess fyrst í gærmorgun, og það var morg-
unin eftir að eg hafði séð manninn. Jón fór í rúmið snemma
um kvöldið, var nokkuð veikur daginn eftir, en eftir 3—4
daga þyngdi honum afskaplega; læknirinn sagði, að það
væri lungnabólga og brjósthimnubólga á háu stigi. í meira
en mánuð lá hann svo milli heims og helju. Vakti eg yfir
honum langan tíma. Mig langaði til aö fylgjast meö í veik-
indum hans.
Frá sýn þessari sagði eg hr. Ogmundi Sigurðssyni og frú
hans, og eg held, að þau hafi sagt hana Þórði lækni Edilons-
syni. Við urðum mjög hrædd um, að þetta mundi boða dauða
Jóns, en svo varð þó ekki. Var maður þessi að koma með
veikindin, eða var hann að líta eftir Jóni? Var hann vernd-
ari lians? Þaö finst mér líklegt. En aldrei varö eg var viö
hann í veikindum Jóns, En það eru margar gátur, sem við
fáum eigi ráðið; það er ekki nóg, þó að hulunni sé lyft upp
rétt sem snöggvast. Það er ekki nóg, þó að við sjáum eitt,
atriði í sjónleik, ef tjaldið er svo ekki dregið upp aftur.
En þannig liugsa eg, aö sýnin á þessum mauni hnfi verið, að
það hafi að eins verið einn þáttur í hlutverki hans, að hann
laut yfir Jón í byrjun veilcinnar.
Vér vitum elcki, nema þetta hafi að eins verið byrjun