Morgunn - 01.12.1923, Page 67
MORGUNN
193
En þetta er ekki það, sem vér tíðast nefnum opinbernn.
Hina séretöku opinberun kristindómsins höfum vér verið van-
in á að nefna yfirnáttúrlega. Hún er fengin alveg sérstaka
leið: fyrir inillligöngu spáinanna og postula. Sú opinberuu
er ekki fengin með þeim hætti, að hinum vanalegu skiln-
ingarvitum sé beitt, eins og þegar vísindamennirnir eru að
leita eða álykta. Nei, þá kemur opinberunin úr Guðs hulda
heimi og viðtökutækið er spámanns-hæíileikinn eða ná'öar-
gáfumar í þeirra mörgu myndum. Fyrir þær sjá menn, sýnir
eða heyra boðsliap sendiboða Guðs úr huldum heimi. Svo seg-
ir biblían oss frá. Samkvæmt, því, er þar er fullyrt, er það
aðal-opinberunarleiðin. Ilvers vegna ætti sú Íei6 að vera lok-
uð? Af hverju skyldi hennar ekki liafa notið við neina lijá
Gyðingum á tímum Gl.tm. og meðan Jesús og postular hans
voru uppi? En hafa ekki flestar kirkjudeildir nú lengi talið
hana lokaða?
„Eg liefi enn margt að seg'ja yður, en þér getið ekki borið
það að sinni.“ Er nokkuð sennilegra en að Kristur hafi orðið
að tala svo við samtíðarmenn sína, og mun hann ekki hafa
orðið að hugsa svo til hverrar kynslóðarinnar eftir aðra, sem
síðan hafa lifað?
Sannleiks-andinn ihefir æfinlega verið viðbúinn að birta
mönnum meira, að halda opinberuninni áfram, en mennirnir
hafa ekki getað borið það að sinni. Þeir hafa verið of tregir
til að trúa, of skilningslausir á andlega hluti. Og hafa þeir
ekki lagst leitina undir höfuð? Visindam'ennirnir hafa stöð-
uglega verið að leita á sínu sviði, í hinni sýnilegu náttúru.
Og þeir hafa líka stöðuglega verið að finna. Þar hefir árang-
urinn orðið glæsilegur; anda sannleikans hefir æ af nýju
verið úthelt yfir þá. Þó var þeim aldrei gefið annað eins
fyrirheit á þeirra sviði og Kristur gaf lærisveinum sínum.
Hann bauð þeim beinlínis að halda áfram leitinni, svo að
þeir mættu hljóta meiri opinberun. „Biðjið og yður mun gef-
ast, 'leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun
upp lokið verða.“
13