Morgunn - 01.12.1923, Síða 77
MORGUNN
208
á litinn (ljós) og hornin hogasneidd. Eg kannatSist ekki við
þetta. Sér drengurinn þá nýja stafi: „Ja, gleyminn ertu“.
A næsta fundi minnist hann enn á rauða 'kassann, og hélt
því fast. fram, að hann helfði átt hann: „Þú hlýtur að muna
eftir ihonum, hann var niðri í stóra eikarmálaða kassanum
mínum.“ Eftir þeim kassa man eg vel. Áður en eg fór hingað
til Reykjavíkur, mintist hann enn á kassann, og segir mér
í skrift hjá stulkunni að spyrja mann, er hann nefnir um
þett.a. Hún hafði enga hugmynd um, að þessi maður væri
til, en hann var nefndur rétt. Eg á eftir að grenslast eftir
þessu.
Á fundi 19. febr. sér drengurinn mann, er hann lýsir
þannig: „Hann er meðalmaður á hæð, hárið er grátt og yfir-
skeggið sömuleiðis, sköl'lóttur, í svörtum fötum. Yfir honum
sér hann stafina H. E„ fæddur 1830, að mig minnir. Dreng
urinn heldur áfram að lesa: „Manstu e'ftir Rauð, reiðhestin-
um mínum?“ S. H. Kvaran, sem var viðstaddur, gat þess, að
hann myndi betur eftir gráa litnum, og minnir hann á það.
H. E. kvaðst ekki þá muna glögt eftir þeim, en heldur svo
áfram : „Manstu þegar þú varst að læra hjá mér latínuna, eg
skrifaði orðin á gráleita bök, sem eg held þú eigir enn“. S.
H. Kvaran gat þess, að hann myndi ekki eftir þessu með
bókina. H. E. svarar aftur, að hann liafi séð hana á skrif-
borðinu hans fyrir nokkrum árum; utan á henni stóð Gopy
Book. ,,Þú manst þó eftir að eg meiddi mig í fætinum?“ S.
H. Kvaran játaði því, en hann hefði þá ekki verið hjá honum.
en hefði komið um sumarið. H. E. svarar aftur: „Já, það er
nú satt‘ ‘.
Nokkru eftir að S. H. Kvaran var farinn til alþingis,
fanst 'bók, scm var að út'liti eins og áður hefir verið lýst af
H. E„ eu í liana voru skrifuð orð eftir séra Hjörleif Einars-
son, on þau voru ensk. Fundurinn 21. febrúar byrjar með bví
að drengurinn sér H. E. Yfir honum stendur letrað H. E.
Hann segir, að hann hafi úrfesti með löngum, opnum hlekkj-
um. Sv.o að segja tafarlaust sér hunn letrað hjá honum þess-
ar setningar: „Manstu eftir hundinum, sem var heima?“