Morgunn - 01.12.1923, Page 79
MORGUNN
20 &
gætum séð það í ferðapistlum þeim, er hann reit um ferðina,
„Vesturf ör‘ ‘.
Daginn eftir leituðu sumir af fundarmönnum í kassa ein-
um á heimili S. H. Kvaran, sem i var samsafn af blöðurn,
bókum og fl. þessháttar.
Bókin fanst ekki; en sá er leitaði rakst þar á bréf, og
sá, að á því stóð ártalið 1907. Hann fór að athuga bréfið, og
sá það var frá séra Hjörleifi. I bré'finu stóð meðal annars, að
Einar sonur H. E. hafi komið öllum á óvænt, að þau hjóuin
hafi þá verið nýkomin á fætur, þegar hann kom heim, og
Tryggvi sonur sinn hafi orðið mjög veikur af mislingunum,
og tvísýnt í 3 daga, hvort hann mundi lifa. Ennfremnr að
hann hafi tekið 10 börn til kenslu, til að stytta sér stundir.
Á fundinum þ. 9. marz sér drengurinn H. E. Yfir höfði
hans sér hann letrað: „Hjörleifur prófastur Einarsson“. Svo
les hann áfram: „Eg man þegar eg var sæmdur krossi; mér
þótti ekki mikið út í það varið. Eg man líka, að einu sinni
sendi eg Sigurði bréf með skipi, sem hét Eljan. Líka man eg
eftir, að 2 menn, sem gistu lijá okkur, sendu konunni minui á
jólunum myndastyttu. Þeir voru útlendingar. Eg má segja,
að nafn annars mannsins byrjaði á A, en seinna nafnið var
Möller, en man ekki, hvað hinn hét. ■— Þetta held eg hafi
verið um það leyti, sem konungskoman var, og þá vorum við
í Reykjavík. Myndastyttuna liafði Tliorvaldsen búið til; hún
bafði kostað töluvert miltið á þeim tímum. Einnig man eg að
þetta mál, spíritisminn, vakti mikið fyrir mér, þegar eg lifði;
eg las mikið um það, og mig minnir eg hafi skrifað Sigurði
það, að mér fyndist það lyfta huga mínum hátt. Mér fanst
þetta var einhver merkilegasta uppfynding mannkynsins.
Eg man, að um þetta leyti leigðum við hús fyrir 22 kr. um
• mánuðinn. Eg man einnig eftir því, að eg bjó Láru, dóttur
Jósefs, undir Verzlunarskólann; meiningin var að láta hana
fara í mentaskólann, en það varð ekkert úr því. í dag hefi
eg verið að hugsa um gamlar endurminningar, fékk leyfi til
þess, og eg hefi reynt að segja ekki annað en það, sem ein-