Morgunn - 01.12.1923, Qupperneq 95
MORGUNN
221
í annað sinn kom vantrúaSur gestur á heimilið, og efaði
sögusögn Maríu. Þykir henni draummaÖur hennar syngja fyr-
ir hana sálmana númer 58 og 59 og bað liana að muna númer-
in, og ennfremur að vera hugglöð, þótt orð Jiennar væru ef-
uð. Við því yrði ekki gert, að sumir gætu engu trúað, nema
því, sem þeir þreifuðu á.
Guðmundur náttúrufræðingur Bárðarson kom hingað,
þegar hann frétti um jurtina, sem þá var eftir lifandi. Þegar-
hann var kominn, sækir ákafur svefn að Maríu, að vanda.
Sofnar hún þá snöggvast, og dreymir, að liún er að hugsa
um, að ilt sé, ef náttúrufræðingurinn efi sögu hennar; þá
muni fleiri verða til þess að fylgja honum að málum en sér.
Þá birtist draummaðurinn, glaður í bragði og með sigurbros
í augunum. Ilann segir henni, að hún verði að trúa sér, því
aðeins geti henni batnað. Síðan söng hann sálminn númer 113
í sálmabókinni og sagði henni að muna númerið og sýna sálm-
inn, þegar hún vaknaði.
Ilvað sem hver segir um þessa viðburði, þá er það víst,
að hér eru engin brögð í tafli. Alt fólkið hér á lieimilinu er
reiðubúið til að staðfesta það, að rétt sé frá liermt. Þess hefir
verið getið til, af þeim, sem lítt eru kunnugir heimilisháttum,
að María muni ganga í svefni og ná þannig jurtunum, og
einhverju málmdufti, til að dreifa yfir þær. Engum hjer á
bænum dettur þó í hug, að þetta geti átt sjer stað. Þegar
María fékk aðra jurtina í hendur litlu fyrir hádegi, þá var
víst að hún hafði ekki farið út, enda mikil fönn í garðinum
og snjókoma. Þær mæðgur voru hjá henni, áður en hún lagð-
ist til svefns, en María liafði þann sið að núa stöðugt hend-
urnar, þegar hún var í geðveikis ástandi sínu, svo að hún
gat ekki hafa haldið á nokkuru, þegar hún lagðist fyrir. Helga
var yfir henni, söng fyrir hana og horfði á hana þá stund,
sem leið frá því að María lagðist. fyrir og þangað til Helga
tók eftir jurtinni í hönd hennar.
Því getur enginn trúað hér á heimilinu, að María hefði
gengið í svefni nótt eftir nótt, án þess að nokkur yrði þess
var. Him sefur í baðstofu innan um annað fólk. Maður henn-