Morgunn - 01.06.1924, Blaðsíða 57
MORGUNN
51
7. fundur.
27. febr.
Áður1 en miðillinn sofnaöi, benti hann mönnum, þar sem
hann sat inni í byrginu fyrir opnu tjaldi, á ljósan blett, lík-
an þokumekld, út frá vinstri liliðinni á sér. Mökkurinn stældv-
aði og iðaði til, minkaði síðan og stækkaði aftur. Hvítt efni
(gasléreft) hafði verið hengt á tjaldið, til samanburðar, ef
líkamningar kynnu að birtast eða útfrymi sjást. Ljósi mökk-
urinn hjá miðlinum var meö skærlara hvítiun lit en gas-
pjatlan, en þó bar minna ljós á mökkinn en á pjötluna. Ljósa
mökkinn sáu allir fundarmenn, að minsta kosti 1—2 mínút-
ur. Þá hvarf hann. Báðar hendur miðilsins sáust. Prú Kvaran
hélt í þá hægri, en vinstri höndin lá á hnénu á honum.
Eftir að miðillinn var kominn í sambandsástand og sung-
ið hafði verið um hríð, fóru að heyrast högg í byrginu. „Mika“
lét þess þá getið, að það væri vinur sinn, er héti „Pedró' ‘, sem
væri að gefa þessi högg. Miðillinn rétti þá frú Kvaran báð-
ar hendur og hún hélt um þær það sem eftir var fundarins.
Högg fóru þá að koma í stólinn, sem frú Kvaran sat á, og
hann lyftist upp að aftan, eftir því sem hún skýrir frá.
„Pedro“ var þá spurður, hvort hann gæti gefið höggin lengra
frá miðlinum. Því var svarað með þremur höggum í stól-
inn. Rétt á eftir komu höggin í hurðirnar milli skrifstofu
og fundarstofu. „Mika“ tók það þá fram, að líkamning-
um gœti hann ekki komið fram í kvöld, en vildi reyna „tele-
kinetisk“ fyrirbrigði. Ilann tók þá að segja „Pedro“ fyrir,
sagði honum að taka eitthvað, sem væri í stofunni, og láta
það inn í hring fundarmanna. Rétt á eftir heyrðist eitthvað
létt falla á gólfið. Þá bað „Mika“ E. H. K. að opna rifu
á dyrunum að skrifstofunni, því að hann langaði til að láta
sækja eitthvað þaðan, en það væri léttaila, ef op væri á
dyrunum, heldur en ef það þyrfti að fara gegnum heilt efni.
E. H. K. spurði, hvort þá mætti rjúfa „keðjuna“. „Mika“
bað um, að það væri ekki gert, svo að ísl. Jónsson og frú
4*