Morgunn - 01.06.1924, Blaðsíða 61
MORGUNN
55
12. fundur.
9. marz.
Fyrsta sinn reyndir flutningar.
Eftirlitsmenn: Guðm. Thoroddsen lœknir vinstramegin
'Og Haraldur Níelsson hægi-amegin, og liéldu þeir hvor í sína
liönd miðilsins og studdu hné sín við hné miðilsins hvor
sínu megin. Með sama hætti mynduðu allir keðju og höfðu
:gát á sessunautum sínum. Síöan var ljósið slökt. Öllum dyx--
um hafði verið lokað á undan fundinum, og í þremur dyr-
um, er út að ganginum vissu, stóðu lyklarnir í að innanverðu.
Stofuborð hafði verið sett í hringinn, og á því var
cither, fiðla, bogi, bjalla, vasaspegill, blýantur, þerrivöggur-
•og pappírsblokk. Um fiöluna er það að segja, að á henni
voru 3 lýsandi blettir, 2 að ofan og einn að neðan. Forte-
píanó var til hægri og bak við miðilinn, og á því meðal annars
lítil myndavél og rafmagnsborðlampi, sem festur var í tengli.
Bngin fyrirbrigði gerðust fyr en 3 stundarfjórðungum eftir
að sezt var, og var nokkurum sinnum sungið þann tíma. Mið-
illinn var vakandi mestallan þann tíma og talaði við menn
■og söng með.
En þá rnisti hann meðvitundina og höfuðið hneig á
hægri öxl Thoroddsens. Litlu síðar kiptist höfuðið við, og
þá var sagt af vörum hans: ,,God Aften.“ Var talið þreytu-
legt, og segist sá, sem talar, vera „Jakob“. Spyr hann, hvers
helzt vér óskuðum og á hverju hann ætti að byrja. Svarað:
Að spilað sé á eitthvert hljóðfærið. Byrjuðu þá fyrirbrigð-
in á því, að slegnar voru nokla-ar nótur á fortepíanóið, eins
■og með einum, fingri. Þá heyrðust högg barin í píanóið.
Beðið var um 3 högg (af H. N.) og þau gefin; þvá næst
um 5 högg, og þau gefin, og svo fleiri högg.
Þá var talað með dimmri rödd snöggvast gegnum mið-
ilinn; segist sá vera „Pedro“.
Nú rak hvert fyrirbrigðið annað og gerðust mörg í einu.
Er spilað á eitherinn á borðinu, strokið yfir strengina, og
síðan snertir einstakir strengir eins og með beini eða nögl.