Morgunn - 01.06.1924, Blaðsíða 75
MORGUNN
69
SKÝBSLA EFTIBLITSNEFNDAB.
Hinn 19. og 21. marz 1924 kouram vér undirritaöir saman
í tilraunastofunni kl. 7^4 e. h. til þess að rannsaka stofuna,
sérstaklega myrkurbyrgið og umhverfi þess og miðilinn. Skoð-
unin fór fram við ágæta rafljósbirtu. Vér byrjuðum á því að
skoða veggi byrgisins og gólfið í því. Gólfið er steingólf og
yfir því pappadúkur neðst, þá línoleumdúkur og inn á hann
nær gólfteppi inn yfir meginið af byrgisgólfinu. Öllum þessiun
dúkum var lyft upp góðan spöl út fyrir byrgiö og alt nákvæm-
lega rannsakað og fanst þar ekkert lauslegt né grunsamlegt.
Því næst voru byrgistjöldin rannsökuð, sem fest voru á stöng
uppi undir lofti. Tjöldin voru svört, 275 cm. löng og 263 em.
breið samtals og náðu saman í miðju. Efnið í tjöldunum var
svartur lastingur og eru tjöldin einföld. Þá var rannsakaður
byrgisstóllinn, lítill liægindastóll með fjöðrum undir setunni
og klæddur plydsi. Þreifað var vandlega niður með öllu sæt-
inu og stólnum snúið við og fjaðrirnar rannsakaðar nákvæm-
lega og bönd þau er þeim halda. Sjerstaklega var þess gætt, að
hvergi væri saumspretta. Því næst var stóllinn settur aftur í
byrgið.
Næst voru vandlega skoðaðir þeir stólar, er næstir stóðu
byrginu og hugsanlegt var aö miðillinn gæti náö til úr byrginu.
Þá voru skoðuð dyratjöldin, er hanga fyrir dyrunum milli
skrifstofu Einars H. Kvaran og tilraunastofunnar, sömuleiðis
stengumar er tjöldin hanga á. — Þá var raðað stólum eftir
því sem fundarmenn áttu að sitja, í hálfhring fyrir framan
byrgið og hið þannig afmarkaða svæði nákvæmlega athugað.
Að því búnu var miðillinn leiddur inn og látinn fara úr öll-
um fötum á gólfinu milli tjaldsins og stólaraðarinnar í viður-
vist vor allra. Lagði hann öll fötin á einn stólinn og talaði við
oss á meðan. Nú með því að 4 af oss á seinustu fundum höfð-
um séð heilar líkamningar og vér lögðum aðaláherzluna á, að
heilar líkamningar kæmu í ljós á þessum sjerstaklega undir-
búnu fundum (testseancer), þá töldum vér óþarft að leita í
koki miðilsins né annarsstaðar inn í líkama hans. En þó var