Morgunn - 01.06.1924, Blaðsíða 100
94
MORGUNN
nefna tvo. Annar er prófessor í verkfræði og heitir Ostrowski.
Ilann sagði okkur hina einkennilegustu reimleikasögu, sem eg
hefi heyrt. Iíefir hann sjálfur rannsakaö reimleikana. Yona
eg að geta síðar látitS „Morgunn“ fá þýðing af frásögu hans.
Hinn er greifi, sem heitir Joseph Zaluslci og á heima í
Iwonicz. Hann ér mjög mentaður maöur, hefir dvalist í Eng-
landi og mælir vel á enska tungu. Hann sýndi okkur frænd-
um hina mestu vinsemd. Ilann er alsannfærður spíritisti og
kvaðst hafa haft yfir 100 fundi með Jean Guzik á heimili
sínu. Mér var sagt, að hann væri einn hinn auðugasti mað-
ur í Póllandi og ætti miklar landeignir. Yfirlætislausari mann
hefi eg sjaídan hitt. Einn daginn sýndi hann okkur þann
hluta Varsjá-borgar, þar sem Gyðingar húa. Þar var ein-
kennilegt að koma og margt skrítið að sjá. Auglýsingarnar á
götuspjöldunum og í búðargluggunum voru á hebresku. Þegar
Gyðingarnir uppgötvuðu, að eg hafði einhverja hugmynd um
mál þeirra og sáu, að eg var að stafa mig fram úr auglýs-
ingunum, brostu þeir vingjarnlega og kinkuðu kolli. Annars-
var okkur margt sagt um Gyðingana í Póllandi, og mér finst
eg skilja nú betur en áður, hvernig stendur á óvildinni gegn
þeim þar og í Rússlandi.
Tveim amerískum konum, sem þingið sóttu, hafði eg einn-
ig mikla unun af að kynnast.
Þegar vér spurðum Pólverja, hvemig mundi standa á
því, að þeir ættu svo marga miðla, var svarið ætíð hið sama:
„Vér brendum aldrei neinar galdranornir, eins og flestar aðr-
ar þjóðir gerðu.“ Þeir eru sem sé þeirrar skoðunar, að mið-
ilshæfileikinn gangi í erfðir, og að fólkið, sem ofsótt var og ■
brent fyrir „galdra“, hafi að eins verið gætt miðilshæfileik-
um, sem menn þá skildu ekki, hvað var.
Eftir þingið brugðum við frændurnir okkur, ásamt nokk-
urum öðrum útlendingum, suður til Kraká og skoðuðum hina
frægu borg, sem áður var höfuðborg Póllands. Þaðan héld-
um við aftur til Breslá og eg siðan sömu leið heim aftur.
Eg ætla að enda þessa skýrslu mína á því að þýða um-