Morgunn - 01.12.1925, Blaðsíða 52
MORGUNN
3 94
Mcðal þeirra, sem voru viðstaddir nokkrar af tilraun-
unum með frú Maríu í Mexicoborg, voru J. Starr-Hunt sál.
amerískur lögfræðingur, sem átti lieima andspænis einkabú-
stað Madero forseta, þess sem myrtur var, Tliomas Gore,
eigandi Hotel Genéve, sem margir Ameríkumenn liafa búið
í, Doctor Monjaras, frægur læknir og fleiri menn á svip-
uðu menningarstigi. Nokkrir fundirnir voru haldnir á skrif-
stofu Pagenstechers læknis í Afreksmannastræti nr. 5 (5,
Avenida Ilombres Ilustres).
Þegar frúin var komin í dásvefn, var pappírshnífur úr
fílabeini látinn milli fingra liennar, sem voru stífir. Ilún
gat ekki séð liann og hefði vissulega ekki geta greint
með eðlilegri tilfinningu, hvað var milli fingra hennar. En
hún byrjaði samstundis að skýra frá, á spönsku, livað hún
sæi. Hún kvaðst sjá fíla á ferð í skógi, vopnaða svertingja,
og apa að ltlifra í trjánum. Einn fíllinn datt og það var
einkennilegt að hún sá apana á rölti í kringum hann. Frúin
lýsti með óttablöndnum rómi skrípalátum eins apans, sem
kom nær og nær fílnum, xmz deyjandi dýrið náði til lians
með rananum og slöngvaði honum af heljar afli á tré nokk-
urt. Lýsingin var áhrifamikil, þó ekki væri hún fullkomlega
sannfærandi.
Bréfmiði var látinn í lófa hennar. Enginn viðstaddur
vissi, hvað stóð á honum. Það var eltki nema augnablik,
síðan hann liafði verið tekinn úr innsigluðu umslagi; í því
liafði hann verið frá því hann kom til Mexico. Augu frú-
arinnar voru lokuð. Bréfmiðann snerti hún aðeins með
stirðnaðri hendimii.
„Verðið þér nokkurs vör?“ .sjjurði Pagensteclier, á
spönsku.
„Ekki ennþá“, svaraði frúin, í lágum rómi en þýðleg-
iim; í röddinni 'kendi engrar minstu geðsliræringar.
„Viljið þér gera svo vel að segja mér, ef yður fer að
virðast sem þér heyrið, sjáið eða finnið eitthvað til, eða.
þér finnið einhvern ilm ?
,,Já“, svaraði frúin, veikum rómi.