Morgunn - 01.12.1926, Side 60
3 70
MOEGUNN
Nýstárleg páskaræða í biskupa
kirkjunni ensku.
I. síðasta hefti Morguns er skýrt frá prédikun, sem einn
af prestuin brezku biskupakirkjunnar hafði flutt í kirkju
•sinni, þar sem liann gerði frásögn af tilraunafundi að aðal-
•efninu. Síðan hafa komið fregnir af guðsþjónustu, þar sem
•enn lengra hefir verið farið í sömu áttina.
Presturinn var Cliarles L. Tweedale, sem ritað hefir bók-
ina „Út yfir gröf og dauða“. Ilann er sóknarprestur í biskupa-
kirkjunni ensku. Að lokinni aðalguðsþjónustunni á páskadag-
inn síðdegis, lét liann draga niður ljósin í kirkjunni og sýndi
myndir vinstra megin við innganginn að kórnum og flutti
erindi um myndirnar. Söfnuðurinn hlustaði og horfði liug-
fanginn hálfa aðra klukkustund, og enginn hreyfði sig. Prest-
urinn sagði söfnuðinum, að þetta kvöld ætlaði hann að flytja
honum:
1. Nútíðar-sannanir, sem staðfestu söguna um krossfest-
ing og upprisu Krists og birting hans eftir andlátið.
2. Nútíðar-sannanir fyrir upprisu og framlialdslífi
margra manna, sem dáið hafa á nokkurum síðustu árunum.
3. Nútíðar-sannanir fyrir þeirri staðreynd, að sálir fram-
liðinna manna geta komið skeytnm til vor, og að vér getum
komið skeytum til þeirra.
4. Nútíðar-sannanir fyrir því, að framliðnir menn hitt-
ast eftir dauðann og þekkja hver annan.
Presturinn benti á, að páskarnir væru hin mikla liátíð
kristninnar, því að upprisan væri toppsteinninn í hvelfing
fagnaðarerindisins; án hennar væri alt fagnaðarerindið einskis
vert, eins og Páli postula hefði verið fyllilega ljóst. Enginn
maður, sem nú væri í jarðneskum líkama, hefði séð Krist eða
'krossfesting hans eða upprisu; menn yrðu að treysta frásögn-
um sjónarvotta, sem hefðu verið uppi fyrir nálega tveim þús-