Morgunn - 01.12.1929, Qupperneq 18
144
MORGUNN
sem er ofar þeirra sviði, hljóti að vera óefniskendara, þá
eru þau svið alveg eins áþreifanleg fyrir þeim, sem þar
búa. Þegar síra Drayton Thomas biður föður sinn um lýs-
ingu á heiminum, sem hann nú búi í, gerir hann það á
þessa leið:
»Þegar menn á jörðinni eru að reyna að ímynda sér
líf okkar hér á þriðja sviði, sem við köllum svo, hafa þeir
tilhneigingu til þess að hugsa sér það eins og eitthvað
mjög frábrugðið lífinu, sem þeir lifa á jörðinni. En náttúr-
an kemur venjulega öllum mikilvægum breytingum svo
fyrir, að þær séu sem allra smástígastar, þannig að alt
þroskist stig af stigi.
»Lífið hjá okkur á sammerkt lífinu á jörðinni í því, að
á báðum stöðunum getur maður unnið til gagns fyrir heild-
ina. Sleppið ekki hugmyndinni »likamlegur«, þegar þið hugsið
um okkar heim. Eg hefi líkama og eg er í fötum, en við
þurfum þó ekki að láta »taka mál af okkur«, því að við
getum skapað fötin með hugsun okkar, og það er af því,
að eg hefi vanist á að hugsa mér sjálfan mig i fötum, að
eg er í þeim.
»Við þurfum ekki að borða né drekka. Endurnærandi
öfl halda likama okkar altaf við. Við öndum að okkur nær-
ingunni. Við þurfum ekki að hvíla okkur með því að sofa;
að vísu hvílum við okkur stundum, en við missum ekki
meðvitundina fyrir því. Hins vegar fer eg oft út að ganga,
því að eg hefi altaf haft mætur á göngum. Ef þið spyrjið,
á hverju eg gangi, þá verð eg að svara: að því er mér
finst, þá geng eg á jörðinni, því að þegar eg geng eftir
veginum, þá verð eg var við mótstöðu vegarins alveg eins
og áður. En aftur á móti er auðvelt að fara miklar vega-
lengdir án þess að ganga eða nota nein farartæki, því að
ef við viljum, getum við svifið þangað, sem við hugsum
okkur að komast«.
Um núverandi heimili sitt fer faðir síra Drayton Thom-
as þeim orðum, að það standi í hlíð einni og sé mjög fag-
urt útsýni og víðsýnt þaðan. Segir hann, að garður sé í
kringum húsið og renni á þar ekki langt frá. Svo segir