Morgunn - 01.12.1929, Page 27
MORGUNN
153
hann eiga við kristindóm í sinni réttu mynd, en ekki eins
og hann getur stundum verið rangfærður. —
Eg hefi nú reynt að gefa ykkur nokkura hugmynd um
aðalefnið úr því, sem mér fanst einna merkilegast í bók
prestsins. En eins og eg hefi sagt áður, hefi eg orðið að
sleppa mörgu, sem ekki er síður merkilegt, einkum frá
sjónarmiði þeirra, sem vilja kynna sér sannanirnar í bók-
inni. Það getur einnig verið, að ykkur hafi fundist lítið bera
á prestinum i bókinni, eins og eg hefi skýrt frá efni hennar.
En ef svo er, þá er það mín sök, með því að eg hefi í
þessu yfirliti aðallega tekið þau atriði, sem mér fundust
snerta beinlínis lífið og störfin, og yfirleitt ástandið hinum
megin, en slept frekar þeim köflum, sem háfleygari eru
og hafa inni að halda margskonar hugleiðingar um hin
æðri svið. Kemur það meðfram til af því, að mér er ekki
sýnt um að fást við þá hluti, svo og af því, að það verð-
ur tæplega sagt frá þeim svo vel fari nema með því að
fylgja frásögninni nokkuð nákvæmlega, til þess að ekki
missist úr það, sem er fegurst í þeim hugleiðingum. En til
þess að sýna ykkur, að þessa hliðina vantar ekki alveg í
bókina, ætla eg að taka hér upp niðurlagsorð höfundarins,
sem eru á þessa leið:
»Það er geysileg þörf á því, víðsvegar um heim, að
sannanir fáist fyrir framhaldslífinu og á fræðslu um það.
Sá, sem er í vafa um það, má þakka fyrir, að honum er
hlift við þeim sorglegu efasemdum um þessa hluti, sem
margir, bæði innan kirkjunnar og utan hennar, kveljast af,
andlega og siðferðilega, með því að þá vantar heilbrigða
vissu. Einnig væri rétt af honum, að athuga ástandið í
heiminum og spyrja sjálfan sig, hvort mestur hluti mann-
kynsins lifi, og flestar þjóðir breyti, eins og við mætti bú-
ast, ef þeim væri Ijós tilgangur þessa Iífs og veruleiki lífs-
ins, sem fram undan er. Hópar manna biðja um frið, en
má með skynsemi vonast eftir varanlegum friði, fyr en rétt-
læti, sannleikur og ráðvendni manna á milli, og einnig milli
þjóðanna, ásamt raunverulegum áhuga á annara velferð,
verður hinn viðurkendi siðferðisgrundvöllur í heiminum?