Morgunn - 01.12.1931, Blaðsíða 3
Huernig uitið þér það?
Erinöi fluit i S. R. F. 1.
Eftir Einar H. Kuaran.
Þér kannist öll við postulann og spámanninn Vale
Owen, sem nú er nýlega látinn. Hans hefir svo oft verið
minst hér í félaginu og í Morgni. Hann sannfærðist um
samband við annan heim, fyrir miðilsgáfu sína og konunn-
ar sinnar og margra annara miðla, svo að ekki varð nokk-
ur skuggi af efa eftir í sál hans. Þegar biskup hans tók
að gera honum örðugt fyrir í prestsembætti hans í ensku
biskupakirkjunni, lét hann af því embætti og fór að boða
þessu nýju sannfæring sína í samvinnu við spíritistana.
Vale Owen var einu sinni staddur í samkvæmi með
nokkurum öðrum prestum. Eðlilega báru andleg mál þar á
góma. Einn presturinn sagði þá Vale Owen, að hann héldi
því fram í prédikunum sínum, að mennirnir væru alveg
eins fyrst eftir andlátið, eins og þeir hefðu verið á undan
því — að því undanteknu, auðvitað, að þeir hefðu engan
jarðneskan líkama. — »Hvernig vitið þér það, að þessu sé
svona farið?« spurði Vale Owen. — Nú varð prestinum
ógreitt um svar. Hann hafði ekkert fyrir sig að bera. —
»Eg held Iíka þessu fram í mínum prédikunum,« sagði Vale
Owen. »En eg held því fram vegna þess, að eg hefi sjálf-
ur talað við framliðnu mennina, og þeir hafa sagt mér, að
svona sé það.«
Þér sjáið muninn á aðstöðunni, og farið sjálfsagt nærri
um það, hvor presturinn muni hafa getað flutt sinn boð-
skap af meira sannfæringar-afli — hvor þeirra muni hafa
fundið sig standa á traustara grundvelli.
Þessi saga um Vale Owen kom mér til hugar, þegar
eg var að lesa bók, sem nýlega er komin út á Englandi
9