Morgunn - 01.12.1931, Blaðsíða 36
162
M 0 II G U N N
Um þetta var svo gefin skýrsla, og rituðu undir hana
allir þeir, er sátu í nánd við búrið.
Líka sögu hafði að segja dr. Paul Gibier, forstjóri
gerlafræðistofnunarinnar í New York. Hann rannsakaði
miðilsgáfu Mrs. Carrie Sawyer. Rannsóknirnar fóru fram
í rannsóknastofu sjálfs hans í stofnuninni og voru þar
viðstaddir háskólakennarar, náttúrufræðingar, hugvits-
menn og stjórnmálamenn.
Mrs. Sawyer var lokuð inni í stóru búri úr sterku
járnneti, og var það svo þétt riðið, að aðeins var hægt
að koma litlafingurs gómi inn um möskvana. Hurðinni
var lokað með hengilás, frímerki límt yfir skráargat-
ið, og gúmmíræmum límt yfir öll samskeyti hurðar og
búrs, en síðan tjaldað fyrir búrið, en dauft ljós log-
aði í stofunni fyrir framan það.
Um líkamningar var mikið, engu að síður, en eftir
að setið hafði verið í tvo tíma, bað einn líkamningur-
inn dr. Gibier að vitja miðilsins, því hún þyrfti umsjár
hans við.
Hann hélt, að hann væri beðinn að opna búrið og
ætlaði að ýta fortjaldinu til hliðar, en þá var gripið um
hendina á honum, og henni ýtt til hliðar, en fortjaldið
bungaði út, og miðillinn lá í fanginu á honum í sam-
bandsástandi.
Rannsókn á búrinu leiddi það eitt í ljós, að þar
var alt óhreyft í sínum skorðum, en þeir sem höfðu tek-
ið á grindverkinu sögðu, að það hefði verið brennandi
heitt, og sýnist það hliðstætt fyrirbrigði því, sem kom
fyrir prófessor Zöilner, með skelina, og gæti þá ef til
vill bent til þess, að grindverkið eitt hafi aflíkamast,
þó ekkert verði um það fullyrt.
Samskonar tilraun var gerð með frúna þrisvar
sinnum eftir það, en þá varð að hætta þeim rannsókn-
um, af því að miðillinn var með blóðspýtingi og heilsu
hennar mjög áfátt.
Það sýnist þá vera orðið ljóst, að afnið inni 1