Morgunn - 01.12.1931, Blaðsíða 41
MORGUNN
167
dögg. Ekki eitt einasta krónublað var með broti eða
dottið af, og á burknunum sást alls ekki.
Prófessor Wallace bætir þessu við: „Svipuð fyrir-
brigði hafa gerst svo hundruðum skiftir í mörgum hús-
um, og þó misjafnlega háfi staðið á. Stundum hefir
mestu kynstrum af blómum verið hrúgað upp á borðið.
Oft hafa þau blóm eða þeir ávextir komið, sem fund-
armenn báðu um. Einn af vinum mínum bað um sérstakt
blóm (sunflower heitir það á ensku, körfublóm, með
stórum, gulum randblöðum, stór jurt). Strax datt þessi
jurt niður á borðið, sex feta löng, rótin fylgdi með og
var mikið af mold utan á henni. 1 Florence var hald-
inn fundur með henni. Fundarmenn voru Mr. T. Adol-
phus Trollope og frú hans, Miss Blagden og Harvey
ofursti. Karlmennirnir rannsökuðu herbergið vandlega.
Mrs. Guppy var færð úr öllum fötum og klædd aftur
af Mrs. Trollope. Hver spjör var rannsökuð vandlega.
Haldið var um báðar hendur þeirra Guppy-hjónanna.
Eftir svo ‘sem tíu mínútur sögðust fundarmenn finna
blómalykt; var þá brugðið upp ljósi og var þá fangið
á Mrs. Guppy og Mr. Trollope fult af ilmandi narcissus-
blómum“.
E. W. Cox, hæstaréttarmálafærzlumaður, flutti er-
indi um frúna í félagi brezkra sálfræðinga og sagði
frá fundi, er hann hafði haldið með henni.
Hann heimsótti hana, án þess að hún ætti von á
komu hans, og fékk hana til að fara heim með sér í
vagni, fimm mílur vegar. Snjór var á jörðu. Fimm tím-
um eftir að þau komu heim til hans, var haldinn fund-
ur, en þessa fimm tíma hafði hennar verið gætt, og
hún aldrei látin vera ein. Herbergið var rannsakað á
undan fundinum, hurðinni læst og ljósið slökt. Eftir
þrjár mínútur heyrðist, að eitthvað hlunkaðist niður á
borðið. Var þá kveikt og var alt borðið hulið af stórri
snjóhrúgu. Snjórinn var tekinn af borðinu, og ljósið
slökt aftur. Eftir dálitla stund var borðið orðið fult af