Morgunn - 01.12.1931, Blaðsíða 45
MORGUNN
171
svefni. Þegar hann vaknaði, var hann með dálítinn höf-
uðverk, en jafnaði sig þó bráðlega.
í fyrirlestri um Mirabelli, Brazilíu miðilinn mikla,
:sem Haraldur heitinn Níelsson flutti hér í félaginu fyr-
ir nokkrum árum, og prentaður er í Morgni, segir frá
því, að Mirabelli var fluttur langar leiðir. Segir þar svo:
„Mirabelli var staddur á járnbrautarstöðinni í Luz,
í fylgd með mörgum mönnum, og ætlaði að taka sér
far á skipi til Santos. Hvarf hann þá skyndilega. Að
15 mínútum liðnum er tilkynt með símskeyti frá Sao
Vicente, bæ, sem er 90 kílómetra frá Luz, að Mirabelli
sé þangað kominn. Kemur þá í ljós, að miðillinn fanst
í Sao Vicente nákvæmlega tveim mínutum eftir að
hann hvarf í Luz“.
Nefndin, sem rannsakaði Mirabelli, segir líka frá
öðru flutningafyrirbrigði, er gerðist með Mirabelli, og
svipar því til þess, er kom fyrir með Eglinton, og eg
sagði frá áðan. Hann sat fjötraður í fundarherberginu,
að mörgum lærðum mönnum viðstöddum. En alt í einu
var hann horfinn. Hann fanst í hliðarherbergi, lá þar
á legubekk, í sambandsástandi, og var að syngja sálm.
Nefndin fullyrðir, að vissa sé fyrir því, að þessi flutn-
ingur hafi ekki getað gerzt með neinum eðlilegum hætti.
Eg ætti líklega helzt ekkert að segja um það
óskaplega vandamál, hvernig þeir dulflutningar geti
gerst, sem eg hefi verið að segja frá. Og það verður þá
heldur ekki mikið, En eg get þó ekki annað en látið í
ljós efasemdir mínar um það, að lifandi dýr, og jafn-
vel annað eins völundarsmíði, eins og mannlegur lík-
ami , sé fluttur á þann hátt, að efniseindirnar séu leyst-
ar sundur og settar saman aftur. Mér finst, að aflíkam-
anar aðferðin hljóti að vera eitthvað minna róttæk, og
það sé rétt, sem Sir Oliver Lodge hefir sagt um þetta:
„Eg held, að einhver auðveldari aðferð hljóti að vera
til en þetta“. Þau aflíkamanar fyrirbrigði, sem geta
gerst hjá líkamningamiðlum, og eg mun segja frá síðar,