Morgunn - 01.12.1931, Blaðsíða 50
178
MOKGUNN
í Gautaborg, 11. júní 1890. Aksakof stýrði þessum fundi
og rannsakaði byrgið.
Það mundi verða helzt til langt mál, ef ætti að gefa
skýrslu um hvern af þessum fundum, og því er því slept.
f sambandi við það, sem hér hefir verið sagt um dul-
rænar myndbreytingar miðla, er rétt að geta þess, að það
hefir ekki sjaldan komið fyrir, að þeir hafa annaðhvort
orðið hærri eða lægri, en þeir áttu skapnað til, eða ein-
stakir líkamshlutar þeirra hafa annaðhvort stækkað eða
minkað. Þetta er einkum kunnugt um miðlana Herne,
Morse og Home, og var athugað um þá alla í fullu dags-
ljósi. Herne hækkaði um átta enska þumlunga, var það
einkum búkurinn, sem lengdist, hann gildnaði líka um 6
enska þumlunga.
Höndin á Morse lengdist um lf4 enskan þumlung og
styttist líka um 1% þumlungs. Líka hækkaði hann um
31/0 þumlung og styttist um 4f4 þumlung.
Handleggirnir á Ilome lengdust svo, að munaði lengd
handarinnar. Hægri fótleggur hans lengdist um 6 þuml.
Hann hækkaði svo, að hann varð 6 fet og 9 þuml. (enskt
mál), en lækkaði líka svo, að hann varð aðeins 5 fet á hæð.
Þessar myndbreytingar á Home voru athugaðar 10
—12 sinnum í viðurvist 50 vitna. Við annað tækifæri var
hækkunin á Home mæld af þeim Adare lávarði og Lind-
say. Home lá á gólfinu, og reyndist þá að vera yfir 7
feta hár. —
Geta má þess líka, að þyngd miðlanna við líkamninga
fyrirbrigði hefir nokkuð verið rannsökuð, einkum var það
á árunum 1878—1879, en þó víða síðar. Til þess var not-
uð vog, sem merkir þyngdarmismuninn á sívalning, sem
snýst. Sjást þar allar breytingar, sem verða á þyngdinni,
meðan á fyrirbrigðunum stendur.
Miðillinn Williams léttist úr 153 pundum niður í 33
pund á meðan líkamningarnir voru úti að sýna sig, um
hálfan klukkutíma, en eðlilegri þyngd náði hann aftur,
þegar líkamningarnir voru horfnir inn í byrgið. Miðillinn