Morgunn - 01.12.1932, Blaðsíða 48
174
M O R G U N N
mínútur talaði franski stjórnandinn aftur af vörum mið-
ilsins og sagði: ,,Nei, ekki nógu sterkt. Taktu liöndun-
um saman og lokaðu kraftinn aftur inni“.
Fundarmenn hlýddu þessu nokkurar mínútur, og^
þá varð rafmagnsstraumurinn svo sterkur, að á sumum
þeirra kiptust hendurnar upp og niður; þeir gátu ekki
haldið þeim kyrrum. Fundarkonunni, sem sat á endan-
um, var sagt að slá út hendinni á áttina til miðilsins, eins.
og áður, og nú varð teinninn úr gufukenda efninu, miklu
þykkri og lengri. Stjórnandinn lét í ljós ánægju sína.
og tók að draga efnið til sín aftur. Jafnframt virtist
hann nudda því með ákefð inn í brjóstið á sér, og því
næst vafði hann því utan um hálsinn á sér. Við sáum
þessa hringi liggja utan um háls hans og herðar nokk-
urar sekúndur; þá virtust þeir hverfa inn í líkama hans.
Á þessu stóð nokkurar mínútur. Þá lagði hann fingurna
á annari hendinni létt á plötuna á litla borðinu og sagði.
fundarkonunni í endasætinu að leggja líka vinstri hönd
sína á borðplötuna. Hún gerði það, og borðið lyftist
nokkur fet upp í loftið. Það lyftist svo hátt, að fund-
arkonan varð að standa upp og teygja handlegginn
svo hátt sem hún gat, til þess að geta haldið fingrun-
um á borðplötunni. Það var mjög skrítið að sjá, í skæru
ljósi, borð uppi í loftinu, án þess að nokkuð styddi það
neðan frá. Einfalt fyiúrbrigði, en mjög áhrifamikið og
sannfærandi.
Stjórnandinn sagði þá, að hann ætlaði að gefa þeim
hugmynd um, hvað mundi gerast, ef þeir sleptu hönd-
um hvers annars og slitu kraftstrauminn, meðan á fund-
inum stæði. Hann sagði einum fundarmanni í miðri skeif-
unni að sleppa höndunum, sem hann hélt í, og á sama.
augnabliki skall borðið niður á gólfið. Fundarmenn tóku
aftur höndum saman og fundarkonunni í endasætinu
var sagt að slökkva gasljósið, sem var rétt hjá henni,
eftir að miðillinn hafði flutt sig inn fyrir tjöldin og var
seztur á tréstólinn.