Morgunn - 01.12.1932, Blaðsíða 54
180
M 0 R G U N N
á þessi námsskeið, og gerir grein fyrir því, hvað afar-
mikill ávinningur það sé. Eins og máleíni sálarrannsókn-
anna nú er komið hér á landi, er eg ekki sannfærður
um, að því yrði meiri greiði gerður með öðrum hætti en
þeim, að einhverjir vel hæfir menn, karlar eða konur,
eða hvorltveggja, leituðu héðan af landi á þessi náms-
skeið og gerðu sig með þeim hætti færa um að leið-
beina sálrænu fólki hér á landi. Nú er orðið svo mikið
um ferðalög héðan til útlanda í alls konar erindum, að
það virðist ekki þurfa að vera neinar skýjaborgir, þó
að gert sé ráð fyrir, að einhver vilji fara utan til þess að
efla sínar sálrænu gáfur.
Eins atriðis í bók frúarinnar verð eg að geta, áður
en eg hætti, af því að eg hefi sjálfur fengið reynslu fyr-
ir því, að leiðbeiningar hennar í því efni hafa orðið að
gagni. Þær eru um trancinn, eða sambandsástandið, sem
hann hefir verið nefndur á islenzku.
Hún segir að tegundir sambandsástandsins séu
þrjár. Fyrst er það ástand, er hinn framliðni stjórnandi
hefir alt vald á miðlinum, og stjórnar heila hans svo
algerlega, að hann veit ekkert um það, sem sagt er eða
gert með líffærum hans.
Önnur tegund ástandsins er sú, er stjórnandanum
tekst að eins að gera miðilinn meðvitundarlausan um
stutt tímabil, meðan á trancinum stendur. Þess á milli
heyrir miðillinn hvað stjórnandinn segir, en getur ekki
gripið fram í, nema með því að stöðva stjórnina, sem að
líkindum veldur fundarslitum.
í þriðju tegund ástandsins veit miðillinn af sér all-
an tímann. Hann veit, að stjórnandinn er að nota hann,
heyrir alt, sem sagt er, og getur haft vald á því, hve
talið er langt, af því að, meðan á fundinum stendur, er
stjórn miðilsins sjálfs á líffærum hans og hæfileikum
sterkari en yfirráð stjórnandans. Þetta þriðja stig hefir
sína kosti að sumu leyti, því að miðillinn getur þá töluvert
lært, ef stjórnandinn er fær um að fást við mikilsverð mál-