Morgunn - 01.12.1932, Blaðsíða 57
M0R6UNN
183
Þeim bera. Og eg hefi ekki tíma til að minnast á það,
sem eg þykist sjá. Eg ætla að eins að lokum að benda
á eitt atriði. Gerum ráð fyrir, að prestastétt landsins
dmskapaðist með þeim hætti, að mikill þorri hennar yrði
skipaður miðlum, mönnum með æfða, áreiðanlega, sál-
i'æna hæfileika. Gerum ráð fyrir, að menn ættu sama
erindi til prestanna eins og menn hafa nú um 18 ár átt
til Mrs. Leonard og eins og menn eiga nú til einstöku
tnanna í Reykjavík, svo sem ísleifs Jónssonar og frú
Guðrúnar Guðmundsdóttur, sem starfað hefir fyrir Sál-
arrannsóknafélag íslands tvo undanfarna vetur, — að
íá frá þeim sannanir fyrir framhaldslífinu, að fá frá
þeim fregnir af horfnum ástvinum sínum, huggunar og
ástúðarkveðjur frá þeim, fræðslu um þann heim, sem
vér eigum allir að fara inn í, og jafnvel annars heims
lækningar við andlegum og líkamlegum meinum. Eg
geri ráð fyrir, að sumum finnist fjarstæða að gera ráð
fyrir slíku. Samt er því nú svo farið, að fjöldi presta í
Bandaríkjunum er miðlar. Nýlega kom einn þessara
presta til Englands, hvað eftir annað, og vakti bæði
undrun og aðdáun fyrir hina glæsilegu dulrænu hæfi-
leika sína. Og þeir, sem þykir það fjarstæða, hugleiða
það elcki, eða hafa ekki þekking á því, að kristnin varð
svo fljótt að ómótstæðilegu afli með þjóðum veraldar-
innar, a. m. k. meðfram fyrir þá sök, að boðberar henn-
ar voru gæddir afarmiklum sálrænum hæfileikum.
Það leynir sér ekki, að nú er hafin herferð gegn
prestastétt landsins. Mikilsmegandi menn vilja fækka
prestum svo, að lítil líkindi eru til þess, að áhrifa þeirra
kenni að mun, ef þeim tillögum verður framgengt, sem
bornar hafa verið fram í þá átt. Til þess er stofnað, að
þau kirkjulegu störf, sem þeir hafa haft með höndum.
verði dregin úr höndum þeirra og verði gerð algerlega
veraldleg.
Mjög miklar brigður eru á það bornar af einhverj-
um — eg veit ekki hvað stórum eða litlum — flokki