Morgunn - 01.12.1932, Blaðsíða 95
M 0 R G U N N
221
an við prjónabúninginn og slæðuhettuna, en innan byrg-
isveggjanna, hvítt efni, sem líktist slæðum, fjórum sinn-
um. Síðasta skiftið, sem þetta kom fram, var ljósmynd
tekin af því með 5 stereoskópáhöldum. Ljósmyndirnar
koma nákvæmlega heim við það, sem vér athúguðum beint.
Eftir fundinn fór af nýju fram rannsókn á byrginu, bún-
ingnum og hr. Nielsen, og ekkert hvítt efni, sem líktist
slæðu, fanst.
Samkvæmt þessu hikum vér ekki við að láta uppi
þá skoðun, að hr. Einar Nielsen sé sannur trancemiðill,
og að í sambandi við líkama hans geti komið fram hvítt
efni með einhverjum hætti, sem enn verður ekki skýrður,
en er að minsta kosti ekki háður neinum sjónhverfinga-
brögðum.
Kaupmannahöfn, 13. desember 1921.
F. Grunewald, verkfræðingur. Knud H. Krabbe, Dr. med.
Chr. Winther, prófessor, Dr. phil.“.
Eftir þessa rannsókn fóru fram umræður um hana í
Sálarrannsóknafélaginu í Kaupmannahöfn. Nefndin skýrði
þar frá tilraununum, og varði þær öfluglega. Prófessor
Winther lét þess m. a. getið, að hann hefði haft tækifæri
til þess að taka á útfryminu, og að stundum hefði það
verið líkast álaroði viðkomu og stundum líkast kongu-
lóarvef. Dr. Krabbe kvaðst hafa byrjað á þessum tilraun-
um með tortrygni, en eftir 13 fundi hefði hann fengið
þá föstu sannfæring, að við þessar tilraunir hafi eftirlitið
verið fullkomið, og að árangurinn verði ekki skýrður með
sjónhverfingalist. Miðilinn sagðist hann hafa í-annsakað
á nærri því blygðunarlausan hátt, um allan líkamann, og
jafnvel þá líkamshluti, sem menn halda mest leyndum.
Nielsen hefði mátt vera meiri snillingurinn, ef hann
hefði getað beitt þessa athugulu rnenn brögðum í þessum
umbúðum og jafnhliða þessu eftirliti. Hann tók enga borg-
un fyrir þessar þriggja mánaða tilraunir. Ef hann gat gert
L