Morgunn - 01.12.1932, Blaðsíða 109
M O R G U N N
235
inn af fysiskum miðlum, og það kann að geta stafað af
einni eða öllum þeim fjórum hugsanlegum orsökum, sem
hér fara á eftir, hvort árangurinn verður góður eðavondur.
„1. Hucjarfar fundarmanna. Fyrirbrigðin eru léleg,
þegar fundarmenn eru ókunnugir miðlinum, en eftir því
sem miðillinn og stjórnandi hennar, Albert, fá meira
traust á fundarmönnum, eftir því batnar árangurinn fljót-
lega. Ef fundarmenn eru mjög hneigðir til svikakenning-
arinnar, þá fá þeir fyrirbrigði, sem mjög líkjast því, að
brögð séu höfð í frammi.
„2. Sálrænn kraftur fundarmanna. Albert heldur því
fram, að hann fái mikinn ,,kraft“ frá fundarmönnum, og
það virðist sennilegt, að ef í hringnum eru eingöngu menn,
sem hafa lítinn eða engan sálrænan kraft, þá verði fyrii'-
brigðin þróttlítil eða komi alls engin. 1 okkar flokki voru
tveir all-sterkir miðlar, og Albert þakkaði þeim fyrir þá
hjálp, sem þeir hefðu veitt sér. í þessu sambandi er það
eftirtektarvert, að þegar fundurinn hafði verið lélegur,
fundu þessir fundarmenn ekki til neinna óþægilegra áhrifa,
en þegar árangurinn af fundunum hafði verið glæsilegur,
kvörtuðu báðir þessir fundarmenn um mikinn höfuðverk
og máttleysi.
„3. Aftrandi kraftur sumra fundarmanna. Þetta er
ekki nema tilgáta, en það virðist liklegt, að alveg eins og
sumir fundarmenn létta undir með því að leggja til sál-
rænan kraft, eins kunni aðrir að aftra fyrirbrigðunum
með einhvers konar neikvæðum krafti. Að líkindum veit
fundarmaðurinn ekkert af því, og hann kann að vera mjög
áhugasamur um árangurinn. I>essa hugsanlegu orsök er
Örðugt að sanna, því að lélegur fundur gæti stafað af
öðru, og það mundi verða nauðsynlegt að halda nokkuð
marga fundi með hinum grunaða manni og án hans, áður
en hægt væri að kenna honum um lélegan árangur. Við
vorum svo heppin, að í okkar hring voru eingöngu fund-
armenn, sem virtust vera hentugir. Við komum með opn-
um hugum, athuguðum fyrirbrigðin vandlega, en höfð-