Morgunn - 01.12.1934, Blaðsíða 67
MO RGUNN
193
(Morgni hafa verið afhent f leiri vottorð um lækninga-
tilraunir J. S. L. En þau lýsa alveg sams konar fyrirbrigð-
um sem þau vottorð, er prentuð eru hér að framan, svo að
ekki virðist þörf á að prenta þau, þar sem líka engin
•ástæða er til að véfengja prentuðu vottörðin. — Ritstj.).
VI.
Draumarnir.
Frá draumunum, er Jóhann S. Lárusson getur um hér
að framan, að systur sína hafi dreymt, skýrir hún á þessa
leið:
Eg undirrituð vil hér skýra frá manni, sem hefir birzt
mér nokkrum sinnum í draumi; var það fyrst fyrir 13 ár-
um, og er maðurinn Friðrik læknir. Mun eg hér sérstaklega
skýra frá tveimur draumum, er Friðrik læknir hefir birzt
mér í, af því að þeir eru báðir í sambandi við Jóhann S.
Lárusson, frá Skarði, bróður minn.
Þegar Jóhann lá í sjúkrahúsinu á Sauðárkróki, dreymdi
mig, að eg kom inn í ganginn í sjúkrahúsinu. Kemur Frið-
rik læknir þá út úr vestur-sjúkrastofunni, gengur til mín
°8' spyr: „Hvort hann geti gert eitthvað fyrir mig“. En eg
var önug í svari og segi: „Að hann geti ekkert fyrir mig
Sert nú“. Staldrar Friðrik læknir þá við og horfir á mig
með blíðu viðmóti og segir: „Ertu viss um það“. Mundi eg
Þá eftir því, að eg var á leið til að finna Jóhann bróður
ftiinn, svo eg sný mér að Friðrik lækni og segi: „Það er eitt,
sem mig langar til að biðja þið að gera, og er það að skoða
bróður minn, sem liggur í sjúkrastofunni uppi á loftinu
bér í sjúkrahúsinu, því að það þrái eg, að Jóhann fái heils-
una aftur“. Brosir þá Friðrik læknir til mín og segir: „Eg
búinn að skoða bróður þinn“.
Hinn drauminn dreymdi mig aðfaranótt þess 26. nóv.
1931. Var eg þá stödd í herbergi mínu á Sauðárkróki, en
alt í einu fanst mér eg vera komin upp í Skarð; kemur þá
Huðmundur S. Lárusson, frá Skarði, bróðir minn til mín og
Se£ist hann hafa símað til Jóhanns bróður okkar, sem þá
13
L