Morgunn - 01.06.1937, Blaðsíða 11
M ORGUNN
5
upp slíkan dóm og sendir hann út um veröldina, hafi nokk-
uð nákvæma þekkingu á þeirri þjóð, sem hann er að dæma.
Hallesby mun hafa verið hér í Reykjavík um hálfan mán-
uð. Það virðist óhætt að fullyrða, að hann hefir engin skil-
yrði haft til þess að öðlast rétta þekkingu á kristindómi
þjóðarinnar. Hann hefir sennilega fengið vitneskju um
það, að kirkjan hér sé vanmáttug og kirkjusókn lítil.
Eg hefi aldrei dregið neinar dulur á það, að eg telji
það illa farið. En það sannar ekkert um kristindóminn
hér á landi. Eftir honum, sem talað hefir af mestu valdi
um trúmál á þessari jörð, eru höfð þessi orð: „Ekki munu
allir þeir, er til mín segja herra, herra, koma í himnaríki,
heldur þeir, sem gera vilja míns himneska föður“. Og
þegar hann er að telja þá upp, sem sælir séu, minnist hann
ekki á það einu orði, að þeir séu sælir, sem sækja guðs-
þjónustur þeirra tíma, heldur þeir, sem eru fátækir í
andanum, syrgjendur, hógværir menn, þeir sem hungrar
og þyrstir eftir réttlætinu, þeir sem eru miskunnsamir,
hjartahreinir, friðsemjendur og þeir, sem ofsóttir verða
fyrir réttlætis sakir. Hann talaði jafnvel nokkuð þungum
áminningarorðum til sumra þeirra, sem ljúft er „að biðj-
ast fyrir standandi í samkundunum og á gatnamótunum“.
Hallesby veit ekkert og getur ekkert vitað um vilja Islend-
inga til að gera vilja vors himneska föður. Hann veit ekk-
ert um þá eiginleika í hugskotum þeirra, sem Jesús frá
Nazaret telur mestu máli skipta. Honum þykir það mjög
merkilegt að veik kona, sem er að lesa bók eftir hann, biðst
fyrir. Það er eins og hann haldi, að hún sé eina veika kon-
an á íslandi, sem taki slíkt til bragðs. Ekki er of mælt, þó
að sagt sé, að um það geti hann ekkert vitað, enda frem-
ur sennilegt, að þær séu nokkuð fleiri, jafnvel þær, sem
ekki hafa lesið neina bók eftir prófessor Hallesby.
I tilefni af þeim ummælum Hallesbys, að varla sé
nokkurt land í Norðurálfunni svo illa statt í kristilegum
efnum sem ísland, má geta þess, að samkvæmt síðustu
blöðum enskum, sem hingað hafa borist, telst svo til, að