Morgunn - 01.06.1937, Síða 123
MORGllNN
117
hafa fé af mönnum. Ber því að sýkna þau af ákæru rétt-
vísinnar fyrir brot á ákvæðum 26. kap. hinna almennu
hegningarlaga eins og gert er í hinum áfrýjaða dómi.
Refsing hinna ákærðu Óskars og Sigurlaugar fyrir
framangreind brot þeirra á ákvæðum laga um lækninga-
leyfi o. fl., nr. 47/1932, þykir hæfilega ákveðin sam-
kvæmt 18. gr. laganna 40 daga fangelsi við venjulegt
fangaviðurværi fyrir hvort þeirra um sig, en þar sem hér
er um fyrsta brot að ræða hjá þeim báðum, þykir mega
ákveða, eins og gert er í héraðsdóminum, að refsing
þeirra verði skilorðsbundin samkvæmt ákvæðum laga nr.
39/1907, sbr. lög nr. 57/1933.
Samkvæmt þessum málsúrslitum ber að greiða úr
ríkissjóði málsvarnarlaun skipaðs talsmanns hinna á-
kærðu Sessilíusar og Guðrúnar í héraði, Jóns Ásbjörns-
sonar hæstaréttarmálaflutningsmanns, kr. 75.00. Allan
annan kostnað sakarinnar, bæði í héraði og hæstarétti,
þar með talin málflutningslaun skipaðs sækjanda og
verjanda í hæstarétti, 250 krónur til hvors, greiði ákærðu
Óskar og Sigurlaug in solidum að % hlutum, en að i/3
hluta skal hann greiddur úr ríkissjóði.
>að athugast, að réttara hefði verið að höfða sér í
lagi mál gegn hvoru þeirra Sessilíusar og Guðrúnu og
þriðja málið gegn þeim hjónunum Óskari og Sigurlaugu.
Því dæmist rétt vera:
Ákærðu Sessilíus Sæmundsson og Guðrún Guð-
mundsdóttir eiga að vera sýkn af ákæru réttvísinnar og
valdstjórnarinnar í máli þessu. Ákærðu Óskar Valdemar
Eggertsson og Sigurlaug Sigurbjörnsdóttir sæti, hvort
um sig, fangelsi við venjulegt fangaviðurværi í 40 daga.
En fresta skal fullnustu refsingar þeirra beggja, og nið-
ur skal hún falla að 5 árum liðnum frá uppsögn dóms
þessa, ef skilorð laga nr. 39/ 1907 verða haldin.
Málsvarnarlaun skipaðs talsmanns í héraði, hinna
ákærðu Sessilíusar og Guðrúnar, Jóns Ásbjörnssonar