Morgunn - 01.12.1939, Page 16
142
MORGUNN
ueyja heyrði faðir hans, og aðrir viðstaddir ástvinir, dá-
samlega tónlist fylla dánarherbergið. Eftir ítarlega rann-
sókn sannfærðust þeir um, að hljómlistin gat ekki verið
komin frá nokkrum jarðneskum manni.
Enn þá merkilegri er frásögnin, sem hér fer á eftir, þvi
að þar þekkir ekki aðeins hin deyjandi kona röddina, held-
ur sér einnig framliðnu söngkonuna, sem syngur, og vissi
þó ekki áður, að hún væri látin. Gerfinöfnin eru notuð
, .. vegna þess að maður konunnar, sem var
eft/r'diuð-mn Þekktur °S háttstandandi í hernum,
vildi ekki láta birta nafn sitt opinberlega,
en frásögniri er þó tekin eftir honum á þessa leið:
„Frú S., kona S. ofursta í hernum, hafði boðið til sín
nokkrum vinum og bað ungfrú Júlíu X., sem var í þann
veginn að gerast atvinnusöngkona, að dvelja hjá sér í
vikutíma til þess að skemmta gestunum, og gerði hún það.
Nokkrum árum síðar veiktist frú S. hastarlega og bjóst
við að deyja. Hún hélt samt alveg jafnvægi sínu og rósemi,
og var dag nokkurn að ganga frá að ráðstafa eignum
sínum; maður hennar sat hjá rúmi hennar og þau ræddu
málið saman. Skyndilega breytti hún um umtalsefni og
sagði: „Heyrir þú raddirnar, sem syngja?“ Ofurstinn —
sem sjálfur segir söguna — svaraði að hann heyrði þær
ekki, en kona hans hélt áfram: „Ég hefi heyrt þær nokkr-
um sinnum í dag og ég er viss um að það eru englarnir,
sem eru að bjóða mig velkomna inn í himnaríkið. En það
er einkennilegt — bætti hún við — að ég þekki eina rödd-
ina, en ég get aðeins ekki munað hver á þá rödd“. Skyndi-
lega þagnaði hún, benti yfir höfuð eiginmanns síns og
sagði: „Ó, þarna er hún í horninu. Það er Júlía X. Hún
er að koma. Hún hallast yfir þig. Hún er að biðjast fyrir.
---------Ó, sjáðu, nú er hún að fara“. Ofurstinn sneri
sér við, en sá ekkert, og kona hans sagði: „Hún er farin“-
Daginn eftir andaðist ofurstafrúin.
Ofurstinn hélt að þetta hefði ekkert annað verið en eins
konar marklaus draumsýn hinnar deyjandi konu, þangað