Morgunn - 01.12.1939, Qupperneq 28
154
M O R G U N N
sem fyllstrar þekkingar á málinu og ekki sízt, sé þess
nokkur kostur, að tryggja sér samvinnu við góðan og
þroskaðan miðil og fá stjórnanda hans til að athuga hæfi-
leika sína og heyra álit hans. Ýmsir erlendir rannsóknar-
menn vara þó við að leggja of mikið upp úr öllum fullyrð-
ingum um þessa hluti, ekki vegna þess að ástæða sé til að
ætla, að þeir, er hér um ræðir, fari með rangt mál, heldur
vegna þess að stundum hefir það komið fyrir, að full
ákveðið hafi verið kveðið að orði um hæfileika þessara
manna. Þer segja, að það hafi stundum komið fyrir, að á
sambandsfundum hafi sumum fundai'gestanna verið sagt
frá því, að þeir væru búnir ágætum miðilshæfileikum,
hvort sem þeir hafa sjálfir vitað af því áður eða ekki.
Þeir segja að ýmsir þessara manna hafi svo gert tilraunir
til þess að þjálfa slíka hæfileika, en árangurinn hafi oft
orðið minni en við hafði verið búizt. í sambandi við þetta
skal ég geta þess, að ég hefi um tugi ára starfað með ýms-
um miðlum og mönnum, sem búnir hafa verið sálrænum
hæfileikum á mismunandi þroskastigum og síðan ég flutt-
ist hingað til bæjarins, hefi ég að staðaldri haft samstarf
við nokkra góða og ábyggilega miðla hér. Á fundi þeirra
hafa einatt komið menn, sem sálrænum hæfileikum hafa
verið búnir, bæði vitað og óvitað, og stundum í þeim
tilgangi einum, að fá slíka hæfileika athugaða, og leita
álits stjórnenda þeirra, hvort þeir væri líklegir til þroska
eða réttara væri að loka þeim, því að þetta reynist stundum
unnt, ef þeir, sem hlut eiga að máli, koma nægilega
snemma. Þeir, sem í gegnum þessa miðla hafa talað, hafa
aldrei komið með neinar slíkar fullyrðingar, þeir hafa að
eins staðfest, að þessir menn væru sálrænum hæfileikum
búnir í fyllra mæli en menn almennt virðast verða varir
við, en sagt, að ómögulegt sé úr því að skera á þessu stigi
málsins, hver árangurinn kynni að verða, þótt stofnað væri
til tilrauna í þessu skyni, reynslan ein gæti úr því skorið.
Þeir hafa mjög brýnt það fyrir þessum mönnum að gæta
ítrustu varfærni í meðferð þeirra, hvatt þá, ef þeir æsktu