Morgunn - 01.12.1939, Page 31
MORGUNN
157
að gera sér ljóst, að þeir eru ekki orðnir full starfhæfii'
miðlar í einu vetfangi, að þeir verða að undirbúa sig með
samvizkusemi og kostgæfni undir væntanlega starfsemi í
þá átt, og þá fyrst að þeim undirbúningi loknum, geta
þeir með réttu gert sér vonir um, að verða málefninu og
einstaklingnum að liði, en fyrir það eru þeir að girða,
fari þeir gálauslega að ráði sínu og láti undan óskum og
bænum hvers og eins.
Það mun og vera sameiginlegt í reynslu allra þeirra, er
verið hafa á miðilsfundum, að jafnan er mælzt til þess af
þeim, sem segjast notfæra sér sálræna hæfileika miðlanna,
að viðstaddir hafi yfir bænir eða syngi viðeigandi ljóð í
byrjun og lok fundarins, og stundum koma fram tilmæli um
þetta meðan á fundi stendur. Söngur fundarmanna virðist
hafa hin æskilegustu áhrif og sýnist stuðla að betri ár-
angri, hann tengir hugi viðstaddra böndum samhyggðar
og sjálfsagt er því fyrir þá, er til slíkra funda stofna, að
viðhafa þessa aðferð, án nokkurs tillits til þess, hvort vits-
munaverum þeim, er þarna eru sennilega að verki, hefir
tekizt að koma beinum óskum um þetta til fundarmanna.
En því að eins kemur söngur og flutningur bæna að til-
ætluðu gagni, að þetta sé gjört af heilum hug.
Sumir rannsóknarmenn hafa að vísu verið andvígir
slíkri tilhögun. Þeir halda því fram, að rannsóknir á þess-
um efnum megi að engu litast af trúarlegum athöfnum.
Þær eigi að reka með vísindalegu sniði eða eitthvað svip-
að því og verið væri að fást við eðlisfræðilegar tilraunir.
Ýmsir þeirra hafa því hagað rannsóknum sínum í sam-
ræmi við slíkar skoðanir, en eftirtektarvert er það, að slík
tilhögun á rannsóknunum hefir mjög dregið úr æskileg-
um árangri og fyrirbrigðin hafa orðið næsta lítil og óveru-
leg undir slíkum skilyrðum. Mönnum er nú farið að skilj-
ast, að slík aðferð hefir verið óhyggileg, að þeir hafa byrj-
að á öfugum enda, búið til skilyrði, sem þessi fyrirbrigði
ættu að lúta, í stað þess að leita þekkingar á lögmál-
um þeim, er þau eru háð og stjórnast af. Reynslan er sú,