Morgunn - 01.12.1939, Blaðsíða 39
MORGUNN
165
ég þeim spurningum og öðrum slíkum að nokkru, en tel
eigi að síður rétt að gera þeim dálítið frekari skil. Um
engar slíkar hættur er að ræða, nema því að eins að miðl-
arnir ofbjóði sálrænum kröftum sínum með einhverjum
hætti, t. d. ofnotkun hæfileika sinna, óheilbrigðum lífs-
venjum og hvers konar óreglu. Það sem skiptir máli hér
sem annars staðar, er að skynsamlegrar varfærni sé gætt.
Miðlarnir finna að vísu einatt til þreytu eftir fundi sína
fyrstu augnablikin og þeim er ljóst, að hvíld og næði er
þeim nauðsynleg að þeim loknum, og þeir haga sér eðli-
lega eftir því. Öll áreynsla og allt erfiði eyðir starfsorku
líkamans, og að loknu erfiði er verkamanninum það ljóst,
að hvíldin er honum jafn nauðsynleg og fæðan líkaman-
um. Miðilshæfileikinn er þar engin undantekning. Aðal-
hættan við, að menn ofbjóði sálrænu starfsþoli sínu ligg-
ur ekki á þessu sviði, heldur miklu fremur í hinum svo-
nefndu minni háttar tilraunum, svo sem notkun glass,
borðs, talborðs, ritspjalds, iðkun ósjálfráðrar skriftar
o. s. frv. Mönnum hættir einatt við að hugsa, að
slíkar tilraunir geti ekki reynt neitt verulega á sálræna
orku þeirra, sökum þess, hve auðvelt sé að viðhafa og not-
færa sér slíkar aðferðir, en þetta er háskalegur misskiln-
ingur, sprottinn af því, að mönnum er ekki nægilega ljóst,
hve mikla orku þær útheimta. Ef menn gerðu sér það
yfirleitt að reglu, er við slíkar tilraunir fást, að koma sam-
an einu sinni eða tvisvar í viku til slíks, þá er ekkert að
óttast, en stundum, þegar fólk verður þess vart, að áður-
nefndir hlutir geta hreyfzt við snertingu þess eina, og að
með þessum hætti koma stundum fram merkilegar sann-
anir fyrir framhaldslífi einhvers látins vinar þeirra eða
annara, þá fer einatt svo, að ákafinn ber skynsemina ofur-
liði, og dæmi eru til þess að slíkum tilraunum er einatt
haldið áfram, dag eftir dag, stundum jafnvel oft á degi
hverjum, gripið í þetta hvenær sem tóm er til, hlaupið
frá því, byrjað aftur o. s. frv. Þá er hætta á ferðum fyrir
þá, sem þannig fara að. Þessar óreglulegu og síendurteknu