Morgunn - 01.12.1939, Page 40
166
MORGUNN
tilraunir valda þátttakendum stöðugu orkutapi, sem þeir
fá aldrei að fullu bætt að hverri tilraun lokinni, hagi þeir
starfsemi sinni þannig.
Því skal ekki neitað, að stundum hefir merkileg vitneskja
og ágætar sannanir borizt til tilraunamannanna eftir þess-
um leiðum, en skilyrðið til þess að svo megi verða, er að
fyllstu varfærni sé gætt og slíkar tilraunir séu reknar með
alvöru og ábyrgðartilfinningu, með það eitt í huga að leita
sannleikans.
Sé þessa ekki gætt, verður sambandið, sem kann að hafa
fengizt, stöðugt veikara og ófullkomnara með hverjum deg-
inum. Þeim, er frá öðrum heimi reyna til að notfæra sér
slíkar sambandsaðferðir jarðneskra manna, verður stöð-
ugt erfiðara að koma sannanaatriðum til viðstaddra, orka
sú, er þeir hafa haft til umráða, minnkar stöðugt, unz þeir
missa tökin með öllu á því. Mjög er hætt við því, að slíkar
tilraunir ógætilega reknar, geti orðið til þess að opna mið-
ur æskilegum gestum helzt til víðar dyr og samkvæmt um-
sögn erlendra fræðimanna á þessu sviði hafa slíkar öfgar
í notkun sálrænna hæfileika ýmsra manna bakað þeim
hinum sömu töluverð óþægindi, ég þekki einnig nokkur
slík dæmi.
Mér hefur aðeins verið unnt að stikla á stærstu stein-
unum að þessu sinni og mikið er enn þá ósagt í sambandi
við þetta mál, sem þyrfti að segja og þarf að segja. Sál-
rænir hæfileikar mannanna birtast með ýmsum hætti, eins
og ég hef áður getið um, hvern einstakan þeirra þarf að
taka út af fyrir sig, gera grein fyrir því, hvernig hann
kemur í ljós og hvaða aðferðir séu hentugastar og hafi
gefizt bezt við meðferð þeirra og þjálfun. Ég hef hugsað
mér að gera þessu fyllri skil síðar, ef ástæður leyfa og mun
þá taka allt, er að þessu lítur til ítarlegri meðferðar, en
að þessu sinni er mér ekki unnt að lengja mál mitt, enda
nægir ekki eitt stutt erindi til þess, til þess þarf mörg.
En að lokum vildi ég segja við alla þá, sem finna að þeir
eru gæddir sálrænum hæfileikum: Aflið ykkur allrar fá-