Morgunn - 01.12.1939, Page 86
212
MORGUNN
fyrir kemur, ekki með píslarvættissvip, heldur glöð og
hughraust.
Það er aðalatriðið, að sjá það sem bak við liggur, sjá
hinn óbeina ávinning í því, sem fyrst sýnist andstætt,
jafnvel í því sem sýnist vera rangt, að sjá ljósið bak við
skuggann, endurfundina bak við skilnaðinn og komast að
raun um, að þeir sem vér elskuðum, og vér höfðum sáran
sting í hjarta, meðan vér sáum þjáningar þeirra í jarð-
hfinu, þeir eru nú fullkomlega heilbrigðir á öðru lífssviði
og munu aldrei framar líða sársauka né sorgir.
f sálförum mínum, fáeinum, sem ég hef farið í annan
heim, hef ég orðið gagntekin af að sjá þann geislandi þrótt
og fullkomnu vellíðan, sem þar hefir verið að sjá á sér-
hverjum og auðsjáanlegu löngun þeirra, til að miðla ein-
hverju af þessu til vor, ef vér aðeins viljum opna sjálfa
oss fyrir því og fyrir þeim.
Samband við hinn heiminn hefir líka kennt mér umburð-
arlyndi við bresti annara, því að þeir (hinumegin) hafa
kennt mér, að maður geti ekki — á jörðinni — ávallt
greint hið þrönga bil milli þess að skjátlast og heppnast,
því að þeir virðast líta svo á, að það sé að heppnast, þegar
vér gjörum alvarlega tilraun, þótt oss skjáltist auðsjáan-
lega hvað eftir annað.
Það eru margir menn á jörðinni, sem fyrri vonir þeirra
hafa gjörsamlega brugðizt, áform þeirra öll mistekizt og
mundu vera vonlausir og örvæntingarfullir, ef þeim fynd-
ist tilveran hér eiga að vera endir á öllu. Fyrir samband
við vitrar og hjálpfúsar verur frá andaheiminum, lærum
vér, að þetta er aðeins byrjunin, undirbúningur undir
fyllra og farsælla líf.
Eftir 28 ára iðkun og reynslu á spiritismanum, þakka
ég guði á hverjum degi fyrir hann. Hann er máttartaugin
í allri tilveru minni og hefir kennt mér að meta sannleika
og fegurð í hverri mynd sem er.
Ef það gjörir ekki hið sama fyrir alla sem ástunda það,