Morgunn - 01.12.1939, Blaðsíða 92
218
MORGUNN
hjá þeim. Og þá kemur einnig þetta fyrir, sem áður var
minnzt á, að andastjórnendur verða fyrir áhrifum af
ákveðnum hugmyndum miðla sinna, og skjátlast fyrir þá
sök. Ég get vel trúað að þetta sé orsökin til flestra eða
allra spádómanna, sem nú hafa brugðizt, um að engin
styrjöld yrði.
Það virðist auðsætt, að þessi heimur stjórnast af tveim-
ur andstæðum lögmálum — forlögum og frjálsum vilja.
Það þýðir ekki að fást um, að þetta sé sama sem að segja,
að náttúran feli í sér fjarstæður. Náttúran er fjarstæðu-
kennd. Það geta allir sannfærzt um ef þeir hugsa sig um
í fimm mínútur. Hvers vegna verða menn ástfangnir í
þeim, sem þeim eru gjörólíkir? Hvers vegna geta ásjáleg-
ustu menn oft verið mjög óviðfelldnir? Hvers vegna skyldu
skáld, heimsspekingar og mjög sönghneigð þjóð geta leiðzt
út í versta styrjaldaræði? Og svo framvegis.
Ég hef fengið órækar sannanir fyrir, að andar reyna til
að hafa áhrif á menn og konur, til að hjálpa þeim að ná
takmarki sem þau þrá. Og aftur hef ég eins fullar sann-
anir fyrir, að þeir sjá fyrir það, sem ekki verður um flúið,
þó að þeir vildu afstýra því, ef þeir gætu.
Einn stjórnandi sagði nákvæmlega fyrir, að Rússar
mundu bregðast málstað Bandamanna í síðustu heims-
styrjöld. Af tvöhundruð manns, sem hlýddu á þennan spá-
dóm, var enginn sem fékkst til að trúa því. Á þeim tíma
barðist Rússland mjög ákveðið með bandamönnum og
sýndu þeim fyllsta trúnað. Samt sem áður reyndist spá-
dómurinn sannur. Sami stjórnandi fullvissaði mig og aðra
um, að það mundu verða styrjaldir, án þess að nokkurt
stríð hefði verið sagt á hendur. Mér þótti þetta ákaflega
ósennileg staðhæfing, þangað til ég minntist innrásar
Japana í Kína. Og sömu aðferð tók Hitler upp móti Pól-
landi. Þessi spádómur var að minnsta kosti að hálfu leyti
sannur.
En spiritisminn stendur ekki og fellur með styrjaldar-
spádómum. Þegar svona mörgum skjátlast, þá sýnir það,