Morgunn - 01.12.1939, Síða 99
MORGUNN
225
þrætt orði til orðs, heldur hefi ég lagt stund á það, að ná
efni þess og innihaldi óbrjáluðu. Á stöku stað hef ég fellt
úr smágreinar, sem mér fundust óþarfar fyrir oss fslend-
inga.
Jakob Jóh. Smári.
Við þessi formálsorð skal því að eins bætt, að öll fram-
setning bókarinnar er mjög alþýðleg og auðveld og hin
skemmtilegasta að lesa. Höf. skýrir blátt áfram og óhlut-
drægt frá, og dregur hvergi dulur á það, sem enn er óskýrt
í þessum dulrænu en þó í aðalatriðum fullsönnuðu efnum.
Bókin mun því vafalaust verða vinsæl og kærkomin, fyrst
og fremst þeim, sem sálarrannsóknamálinu unna, en einn-
ig þeim, sem hlutdrægnislaust vilja kynna sér það mikla
og þýðingarmesta mál mannkynsins, þótt enn séu þeir
ekki orðnir fylgjendur þess. Um hina er víst ekki að tala,
sem fyrir fram eru ákveðnir á móti því og vilja ekkert
og halda sig ekkert þurfa um það vita, ef ekki telja sér
það jafnvel synd. Ótal margir, sem þannig hugsuðu eitt
sinn, hafa þó síðar fengið opin augu og margur Sál orðið
Páll.
Kærkomin gjöf.
Á liðnu hausti hringdi próf. Guðmundur Hannesson til
mín og tjáði mér að hann hefði tekið á móti gjöf til hús-
byggingarsjóðs S. R. F. í., kr. 57,50, frá vestur-íslenzkri
konu, Mrs. Nikolínu Friðriksson, Selkirk. Kanada.
Fyrir hönd félagsins vil ég flytja hinni góðu konu
hjartanlegt þakklæti, og ekki sízt vegna þess að prófessor-
inn sagði, að þau hjónin mundu fremur hafa gefið af fá-
15