Morgunn - 01.12.1939, Page 110
236
MORGUNN
er orðið sem hann vill, og hann vill að allir verði hólpnir
og komist til þekkingar á sannleikanum. Bjarmi hefir enga
betri huggun að benda á en þá, að vjer erum í hendi Guðs,
bæði hjer og þar.
Honum er illa við spiritismann. Þar við eiga orð hins
vitra og góðgjama Gamalíels: Ef þetta ráð eða verk þetta
er af mönnum, verður það að engu, en ef það er af Guði,
þá megnið þjer ekki að yfirbuga þá. Eigi má yður henda,
að þjer jafnvel berjizt gegn Guði.
Áður hefir verið í Morgni sagt frá frú
Spiritisminn Estelle Roberts. Hún er einn fjölhæfasti
^^hefmsinsUn sem UPPÍ er ^ Englandi, því að ná-
lega öll sálræn fyrirbrigði, sem þekkt eru,
gjörst í sambandi við hana. Red Cloud er aðalstjórnandi
hennar. Hjer er útdráttur úr grein, sem hún ritaði í síð-
astliðnum maí:
Ég hef oft sagt frá atburði, sem kom fyrir á fyrstu ár-
um eftir að ég byrjaði starf mitt, er Red Cloud og ég vor-
um í sameiningu verkfæri til þess að bjarga ungum dreng
frá dauða. Amma drengsisn kom til mín um nótt fyrir
mörgum árum og bað mig að koma til Surbiton og gjöra
eitthvað fyrir lítinn dótturson hennar, sem væri að deyja
úr heilahimnubólgu.
Aldrei mun ég gleyma þessari konu. 1 andliti hennar
stóð uppmáluð þjáning hennar og eymd, að hún skyldi ekk-
ert geta gjört fyrir drenginn, meðan líf hans var að fjara
út fyrir augum hennar.
Þegar Red Cloud sagði henni, að hann og andalæknarnir
skyldu bjarga lífi drengsins hennar, þá hóf hún aftur upp
höfuð sitt og í svip hennar ljómaði ný lífsvon. Óttinn við
dauðann var liðinn hjá og kvaldi hana ekki lengur.
Þetta er það sem spiritisminn hefur að þýða fyrir mig.
Hann er mesta huggun heimsins, þegar gildir mismuninn
á lífi og dauða. Hlutskipti miðilsins er ekki ætíð gleðilegt,
af því að við verðum sjálf að líða með öllum þeim, sem