Morgunn - 01.06.1944, Blaðsíða 6
,,Settu sannleikann hátt“.
Síðan Morgunn kom út síðast hafa þau þáttaskipti orðið
í sögu íslenzku þjóðarinnar, sem þjóðin stóð svo að segja
einhuga um.
Stofnun liins íslenzka lýðveldis að Lögbergi 17. júní s.l.
vakti fögnuð í hverju íslenzku Jijarta. Þá rættust þeir
draumar, sem beztu menn þjóðarinnar hafði dýrasta
dreymt, því þótt sambúðin við sambandsþjóðina hafi ekki
þvingað oss til neinna muna síðan 1918, var það einróma
vilji langsamlega flestra íslendinga, að stíga hið endan-
lega spor sjálfstæðisbaráttunnar óðara og vér hefðum rétt
til samkvæmt sambandslögunum frá 1918.
I ávarpi sínu til þjóðarinnar 18. júní lagði hinn nýkjörni
forseti áherzlu á, að siðasta sporið væri óstígið enn. Það
vitum vér, að er rétt. Fullkomið sjálfstæði getur aldrei
orðið eign ófullkominna manna, jiað getur ekki annað orð-
ið en hugsjón, sem þeir keppa að.
Hið ytra stjórnfrelsi er fengið. Fyrir hinu innra frelsi
verðum vér að berjast enn, og fyrr en því er náð verður
engin þjóð í sannleika sjálfstæð. Meistarinn mikli frá
Nasaret benti á leiðina, er hann sagði: „Sannleikurinn
mun gjöra yður frjálsa". Minnugur þeirra orða vill Morg-
unn t-uka undir þessa ósk skáldsins til þjóðarinnar frá
aldamótunum síðustu:
„Ó, þú fjalldrottning kær,
settu sannleikann hátt,
Iáttu Iiann sitja yfir tímanum djarfan að völdum“.
I réttu Idutfalli við það, sem vér gerumst auðmjúkir og