Morgunn - 01.06.1944, Blaðsíða 30
26
M O R GU N N
ritar hann, ,,og söfnuðust oft utan um hljóðfæraleikarana,
með viðurkenningarorðum og stundum með vinsamlegum
bendingum.“
Á öðrum stað í þessum garði sá hann mestu söngvara,
sem þekkst höfðu hér á jörðu. Þessir „dánu“ listamenn
héldu áfram í hinni nýju tilveru sinni, að færa þeim gleði
og hamingju, sem langaði til að hlusta á dásamleg hljóð
þeirra. Meðal þessara söngvara voru Patti, Melba, Caruso,
Christine Nielsen og Jenny Lind.
1 viðáttumiklum bókasöfnum sá höfundurinn samstæður
allra bóka, sem gefnar voru út á jörðunni. Þar að auki
voru þar skráðar allar hugsanir, orð og gjörðir, sem hver
einasti maður hafði skrásett frá upphafi tímanna. f þessum
nýja heimi hitti John Oxenham marga vini, sem hann hafði
þekkt hérna megin. Hann komst líka að þvi, að það voru
til tilverusvið fyrir ofan það svið, sem hann starfaði nú á
í bili. Á þessum hærri tilverusviðum voru einstaklingar,
sem voru á því þroskastigi, að þeir höfðu unnið til að lifa
fullkomnara lífi. Þeir, sem lifðu á æðri stigum, gátu komið
saman við íbúa lægri sviðanna, til þess að hjálpa til að
stuðla að framförum þeirra. Honum var sagt, að einstakl-
ingar, sem þess óskuðu, gætu enn heimsótt vini á jörðunni,
haldið vörð um þá og hjálpað þeim, sem þurftu á styrk að
halda frá andaheiminum. önnur uppgötvun, sem þessi
„drauma“höfundur gerði var, að allir, sem óskuðu þess,
gátu fengið starf við sitt hæfi, á æðri sviðum. Leti og að-
gerðaleysi var hindrun á leiðinni til andlegrar framþróunar
Hann sá það, að þeir, sem höfðu ekki fengið uppfylltar
óskir sínar um að eiga börn, fengu börn í umsjá sína, eftir
dauðann, sem þurftu á ást þeirra og umhyggju að halda.
Ýmsum þessara litlu barna hafði að óvörum verið hrundið
inn í annan heim af óvinavöldum. 1 þessari ferð um anda-
heiminn hitti hann hjón, sem hétu Mary og John Gasth,
og hann hafði þekt hér á jörðunni. John hafði stundað
garðyrkju fyrir markaði. Þegar hann minnist á jarðlíf
þeirra, segir hann: „Mesta sorg þessara einföldu og við-
ti